Róttækir hægri menn sigra í fyrstu umferð forsetakosninga í Austurríki Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 24. apríl 2016 15:44
Norbert Höfer, frambjóðandi austurríska Frelsisflokksins sigraði í dag í fyrstu umferð forsetakosninga þar í landi. Hann hlaut 36,7 prósent atkvæða og var talsvert langt á undan næstu frambjóðendum. Úrslit kosninganna þykja vera merki um að kjósendur séu óánægðir með ríkisstjórn landsins sem í sitja hinir hefðbundu valdaflokkar landsins. Alexander van Bellen, frambjóðandi Græningja lenti í öðru sæti með 19,7 prósent atkvæða og Irmgard Griss, frambjóðandi óháðra var í því þriðja. Frambjóðendur ríkisstjórnarflokkanna fengu lítið brautargengi og mun Höfer líklega keppa við van Bellen í seinni umferð kosninganna. Úrslitin þýða að í fyrsta sinn frá stríðslokum 1945 mun frambjóðandi Sósíaldemókrata eða Alþýðuflokksins ekki sitja í forsetastól. Gríðarlegt flæði flóttamanna til Austurríkis á undanförnum misserum auk aukins atvinnuleysis í landinu hefur sett þrýsting á sitjandi ríkisstjórn Sósíaldemókrata og Alþýðuflokksins. Telka stjórnmálaskýrendur að niðurstaða fyrstu umferðar forsetakosninganna séu skýr skilaboð til valdaflokkanna tveggja en stuðningur við ríkisstjórn Werner Faymann hefur farið þverrandi. Flokkur Höfer, Frelsisflokkurinn, leiðir í skoðanakönnunum til þingkosninga sem fara fram á næsta ári og er nú með um 30 prósent fylgi. Flokkurinn leggur áherslu á stemma stigu við flæði flóttamanna til landsins. Forsetinn hefur ekki mikil formleg völd en Höfer, sem gengur gjarnan með byssu á sér, segir að verði hann kjörinn forseti muni hann hóta að reka ríkisstjórn Feyman nema hún taki harðar á innflytjendamálum. Mótframbjóðandi Höfer, van Bellen, segir þó að verði hann kjörinn muni hann neita að sverja leiðtoga Frelsisflokksins í embætti kanslara, sigri flokkurinn í væntanlegum þingkosningum. Seinni umferð kosninganna fer fram í lok maí.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira