Ilmandi handklæði í úrslit á vörusýningu Sara McMahon skrifar 22. ágúst 2013 10:00 Ilmandi handklæði frá Scintilla komust í úrslit í keppni um bestu nýju vöruna á vörusýningunni New York Now. Linda Björg Árnadóttir er eigandi fyrirtækisins. Fréttablaðið/Vilhelm „
Þetta er ein af stærstu vörusýningum heims fyrir heimilis- og gjafavörur. Um 2800 vörumerki taka þátt í sýningunni og allir helstu leikmenn í þessum bransa eru þarna. Mér skilst að um sjötíu merki hafi keppt í Best New Product Award að þessu sinni,“ segir Arna Sigrún Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri hönnunarmerkisins Scintilla. Vara frá merkinu lenti í þriðja sæti í keppni um bestu nýju vöruna á vörusýningunni New York Now. Ilmandi handklæði úr lífrænni bómull frá Scintilla hrepptu þriðja sætið í þessari virtu keppni, en handklæðin þola allt að þrjátíu þvotta áður en ilmurinn hverfur úr þeim. „Þetta er ekki ný tækni en hún hefur lítið verið notuð í vörum sem þessum. Við erum með þrjá ilmi sem allir eru innblásnir af vestfirskri náttúru og heita Westwinds and Silent Sands, Wild Thyme and Blueberries og Rain and Deep Blue Water.“ Aðspurð segist Arna Sigrún þess fullviss að velgengni Scintilla í keppninni muni vekja enn frekari athygli á merkinu. „Þetta hefur aukna umfjöllun í för með sér, bæði í Bandaríkjunum og víðar.“Ilmandi handklæði frá Scintilla.Scintilla er hönnunarfyrirtæki sem hannar heimilistextíl-línu með áherslu á grafík, munstur og áferðir. Stofnandi Scintilla er Linda Björg Árnadóttir, textílhönnuður og lektor við fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands. Skoða má heimasíðu Scintilla hér.
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira