Umfangsmestu aðgerðir í Súdan 25. desember 2004 00:01
Hjálparstarf alþjóða Rauða krossins í Súdan er lang-umfangsmesta aðgerð samtakanna. Íslendingar hafa tekið virkan þátt í starfinu og hafa fjórir Íslendingar verið sendir þangað á árinu. Stefnt er að því að senda fleiri utan á næsta ári. Átökin í Darfur héraði í Súdan hafa kostað tug- ef ekki hundruð þúsundir mannslífa og hátt á aðra milljón manna hefur misst heimili sín og hefst nú við í flóttamannabúðum sem reistar hafa verið víðs vegar um héraðið. Hjálparstarf Alþjóða Rauða krossins er viðamikið í landinu þar starfa nú um 200 erlendir sendifulltrúar og 2000 Súdanir starfa þar á vegum samtakanna. Rafn Jónsson yfirmaður flugrekstrar Rauða Krossins í Súdan, segir að starfræktar séu tvær flugvélar í farþegaflug og einnig sjái Rauði Krossinn um allt vöruflutningaflug. Fyrir utan Rafn hafa þrír Íslendingar farið til Súdans á þessu ári. Kristjón Þorkelsson hefur unnið við útvegun drykkjarvatns, Robin Bovey hefur séð um dreifingu matvæla og annarra hjálpargagna og Hjördís Guðbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur, hefur starfað við heilsugæslu. Rauði krossinn stefnir að því að senda fleiri Íslendinga til Súdans á næsta ári. Kristín Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Rauða Krossins, segir þörfina mikla og stefnt sé að því að tvöfalda starfsemina í Súdan. Rafn hefur verið í Súdan síðan í september. Hann er nú heima hjá fjölskyldu sinni í jólafríi en heldur aftur utan eftir jól og verður þar til vors. Hann segir hjálparstarfið í Súdan vera erfiða vinnu. Álagið og spennan séu mikil, enda mikil þensla í starfseminni. Hann segir að vinnudagurinn sé oft á tíðum býsna langur og þreytandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira