Friðarvonirnar fuðruðu upp 13. desember 2004 00:01
Friðarvonir í Miðausturlöndum fuðruðu upp í gærkvöldi þegar sprengja palestínskra hryðjuverkamanna grandaði fimm ísraelskum hermönnum. Svar Ísraelsmanna var ljóst: auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Árásin í gærkvöldi var greinilega vel skipulögð og til þess ætluð að fá sem mesta athygli. Hamas-liðarnir útbjuggu myndband sem sýnir hvernig þeir grófu göng undir herútstöðina, fylltu göngin með einu og hálfu tonni af sprengiefni og sprengdu svo allt í loft upp. Ekki færri en fimm hermenn fórust og tíu særðust. Þetta er mannskæðasta hryðjuverkið frá því að Jassir Arafat lést. Ísraelsmenn brugðust ókvæða við, skutu átta flugskeytum á skotmörk í Gasa-borg og hermenn skutu byssumann úr röðum Hamas til bana. Ísraelskir fjölmiðlar segja frekari hefndaraðgerða að vænta á næstu dögum. Þetta hefur dregið úr vonum um að friðarferlið þokist af stað á ný, en úr röðum forsvarsmanna Palestínumanna sem og Ísraelsmanna bárust sömu frasar og svo oft áður. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði árásina mjög harkalega og að þessa dagana gerðu Palestínumenn árásir nánast daglega. „Þróunin framundan er undir því komin að Palestínumenn skilji að þeir verða að berjast gegn hryðjuverkum,“ sagði Sharon. Saeb Erekat, palestínskur ráðherra, sagði einu leiðina til að rjúfa þennan vítahring ofbeldis vera að endurvekja marktækt friðarferli með það að markmiði að binda enda á hernám Ísraela.
Erlent Fréttir Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Sjá meira