Friðarvonir dofna í kjölfar árása 13. desember 2004 00:01
Vonir um frið í Miðausturlöndum dofnuðu í nótt eftir að palestínskir hryðjuverkamenn gerðu árás á eftirlitsstöð Ísraelshers og herinn svaraði með loftárásum á Gasa-borg. Árás palestínsku hryðjuverkamannanna var skipulögð í þaula en þeir höfðu grafið göng undir landamæraeftirlitsstöð Ísraelsmanna á mörkum Gasa-strandarinnar og Egyptalands. Í göngunum komu þeir fyrir einu og hálfu tonni af sprengiefni sem þeir sprengdu í loft upp með þeim afleiðingum að fimm hermenn fórust og tíu særðust. Þetta er mannskæðasta árás palestínskra hryðjuverkamanna frá því að Jassir Arafat lést. Ekki stóð á viðbrögðunum. Ísraelskar herþyrlur skutu í það minnsta átta flugskeytum á skotmörk í Gasa-borg í hefndarskyni. Eitt þeirra lenti á rafstöð og annað á málmsteypu en ekkert mannfall varð eftir því sem næst verður komist. Nokkrum stundum síðar drápu ísraelskir hermenn byssumann úr röðum Hamas. Ísraelska útvarpið segir herhöfðingja þegar hafa gert áætlanir um frekari hefndaraðgerðir sem hrundið verði í framkvæmd á næstu dögum. Átökin draga nokkuð úr bjartsýni sem vaknað hefur fyrir botni Miðjarðarhafs um að friðarferlið þar gæti þokast í rétt átt. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segir friðarviðræður byggjast á því að árásum linni en kveðst ekki hafa séð neina breytingu á starfsháttum palestínskra yfirvalda frá fráfalli Jassirs Arafats.
Erlent Fréttir Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira