Frestuðu tökum vegna reiðhjólaóhapps Sara McMahon skrifar 9. október 2013 08:00 Óheppinn Gunnar Kristjánsson fer með hlutverk Óla litla í Fólkinu í blokkinni. Hér sést hann tilbúinn í tökur fyrir fyrsta þáttinn.
Sjónvarpsþáttaröðin Fólkið í blokkinni hefur göngu sína í Sjónvarpinu á sunnudag. Þáttaröðin er byggð á samnefndu skáldverki eftir Ólaf Hauk Símonarson. Kristófer Dignus leikstýrir þáttunum og að hans sögn gekk á ýmsu á meðan á tökum stóð. Gunnar Kristjánsson fer með hlutverk Óla litla í þáttunum og þurfti að fresta síðustu tökudögunum um þrjár vikur eftir að pilturinn datt af reiðhjóli. „Hann fékk gat á hausinn og mar í andlitið og við þurftum að fresta síðustu tökudögunum á meðan hann jafnaði sig, greyið. Írónían í þessu öllu er sú að hann leikur hrakfallabálk í þáttunum og í fyrstu senunni í fyrsta þætti fær hann myndarlegt gat á hausinn – á nákvæmlega sama stað og hann datt,“ segir Kristófer. Aníta Briem fer einnig með hlutverk í þáttunum og reyndist nauðsynlegt að taka upp eitt atriði með Gunnari áður en hún flaug til síns heima. „Þetta var mikið púsluspil en við leystum þetta með því að láta hann bera sólgleraugu og passa upp á að hann sneri alltaf sömu hliðinni að myndavélinni.“Fyrr á þessu ári fóru fram áheyrnarprufur þar sem hátt í 600 krakkar freistuðu gæfunnar. Gunnar var að lokum valinn úr þeim hópi til að fara með hlutverk Óla. „Gunnar hafði bæði hæfileika og svo var svipur með honum og hinum í „fjölskyldunni“ og það spilaði einnig inn í ráðninguna,“ segir Kristófer að lokum.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira