Hjartasteinn hlaut verðlaun í Hollandi Ólöf Skaftadóttir skrifar 9. október 2013 10:00 Anton Máni og Guðmundur Arnar taka á móti fimm þúsund evra sigurlaunum á samsölumarkaði í Hollandi. Mynd/Úr einkasafni „
Við fórum á samframleiðslumarkað í Hollandi þar sem við kynntum verkefnið í leit að mögulegum meðframleiðendum og söluaðilum. Myndin okkar var eina alþjóðaverkefnið sem hlaut verðlaun á markaðnum,“ segir Anton Máni Svansson, framleiðandi myndarinnar Hjartasteins, í leikstjórn Guðmundar Arnars Guðmundssonar. Kvikmyndin hlaut fimm þúsund evrur til eftirvinnslu myndarinnar í verðlaun. „Við höfum þegar fengið framleiðsluvilyrði frá Kvikmyndamiðstöð Íslands og erum því nú að leita eftir erlendu fjármagni til að klára fjármögnun myndarinnar. Það er meðal annars gert á svona mörkuðum,“ útskýrir Anton Máni. „Á þessum markaði fengum við aðeins fimm mínútur til þess að kynna verkefnið fyrir fullum sal af fagfólki. Svo fengum við fundi með hinum ýmsu framleiðendum og söluaðilum. Að þessu öllu loknu var haldin verðlaunaafhending þar sem við hlutum svokölluð Warnier Posta-verðlaun,“ segir Anton Máni. „Þessi verðlaun eru þýðingamikil fyrir okkur og munu hiklaust hjálpa okkur með framhaldið,“ bætir Anton Máni við. Hann segir það verulega hvetjandi að fá svona staðfestingu strax í byrjun fjármögnunarferlisins. „Eini efniviðurinn sem við erum með í dag er handritið en það er líka hreint út sagt frábært handrit. Núna erum við líka klárlega komnir með gæðastimpil á verkefnið í stærra samhengi,“ segir hann jafnframt. Hjartasteinn er fyrsta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd en hann hefur áður vakið mikla athygli fyrir stuttmyndir sínar. Þeir félagar stefna á að hefja tökur á myndinni síðla sumars á næsta ári.
Mest lesið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Lífið samstarf Fleiri fréttir Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Sjá meira