Segir húsnæðislán hækka um 64 milljónir vegna greiðsluúrræða 9. janúar 2010 14:13
Flugvirki á fertugsaldri segist þurfa að borga 64 milljónum meira gangi hann að úrræðum Landsbankans fyrir skuldsett heimili. Hann tók lán fyrir þremur árum síðan í yenum þegar hann byggði sjálfu einbýlishús í Reykjavík. Upphaflega tók hann 29 milljón króna lán að eigin sögn en eftir hrun er það komið upp í 66 milljónir rúmar. „Það er verið að plata fólk," segir flugvirkinn sem vill ekki koma fram undir nafni þar sem hann vill ekki opinbera eigin skuldastöðu og hlífa fjölskyldu sinni við umræðunni. Hann segist hafa skoðað þau úrræði sem finna má hjá Landsbanka Íslands, þaðan sem hann tók lánið, og komist að því að fallist hann á það sem er í boði þá þarf hann að lokum að borga 145 milljónir fyrir lánið. „Lánið fór í Greiðslujöfnun sem er öllum til boða," segir flugvirkinn og bætir við: „Ég greiði því svipað og fyrir hrun á mánuði eða um 170 þúsund krónur. Það er tengt greiðslujöfnunarvísitölu. Ef ég held mig við þann kost og klára lánstímann og 3 ára þak lánsins sem er í lögum í dag, þá enda ég á að greiða til baka 81 milljón krónur nema kjör á íslandi og krónan Breytist eitthvað stórlega." Hann segir málin hinsvegar flækjast og sýna heldur verri mynd ákveði hann að taka tilboði bankans um að fella niður 25 prósent af höfuðstól lánsins og breyta því í íslenskt lán. „þá eru niðurstöðurnar hrikalegar," segir flugvirkinn sem reiknaði út á vef Landsbankans að ef lánið er óverðtryggt og íslenskt, þá standi það í rétt tæpum fimmtíu milljónum. Sé lánið með 7 prósent vöxtum þá gera afborganir 379 þúsund krónur á mánuði og lánið stendur að lokum í tæplega 146 milljónum króna. Ef lánið er verðtryggt með 2 prósentu verðbólgu og vextir 4,8 prósent, þá endar lánið í 162 milljónum króna. Mánaðarlegar afborganir verða þá 248 þúsund krónur. „Þannig að ef ég tek óverðtryggt lán og niðurfellingu þá mun ég enda á að borga 64 milljónir meira en ég þarf að gera í þeirri stöðu sem ég er í núna," segir flugvirkinn sem hvetur fólk til þess að stökkva ekki athugunarlaust á þau úrræði sem bankinn býður upp á varðandi niðurfellingu eða breytingu yfir í íslenska mynt. „Það er bara verið að bjóða fólki snöruna," segir flugvirkinn sem líst illa á þróun mála. Við þetta má bæta að Hagsmunasamtök heimilanna og samtökin Nýtt Ísland halda kröfufund á Austurvelli klukkan þrjú í dag.
Mest lesið „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Erlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Erlent Fleiri fréttir Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Sjá meira