Erlent

Hefur áhyggjur af Afríku

Jóhannes Páll páfi annar hvatti til friðar í heiminum í jólaávarpi sínu á Péturstorgi í Róm í dag. Hann sagðist hafa þungar áhyggjur af ástandinu í Afríku og í Miðausturlöndum. Þúsundir voru samankomnar til að fylgjast með jólaávarpi Jóhannesar Páls páfa annars á Péturstorginu í Róm. Jólaávarp hans að þessu sinni var stysta jólaávarp hans, frá því hann tók við embætti fyrir tæpum þrjátíu árum, en páfinn er orðinn 84 ára gamall og þjáist meðal annars af parkinson-veiki. Hann flutti sérstaka jólakveðju á sextíu og tveimur tungumálum,. Páfinn sagðist hafa áhyggjur af stríðshrjáðum svæðum í Afríku og víða í Miðausturlöndum og sagði jarðarbúa þrá frið. Páfinn bað um hjálp Jésu við að koma á friði í heiminum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×