Óvissa í Úkraínu 25. desember 2004 00:01
Óvissa ríkir í Úkraínu vegna forsetakosninganna sem verða endurteknar í landinu á morgun. Stjórnlagadómstóll Úkraínu úrskurðaði í dag að breytingar sem gerðar voru nýlega á kosningalögunum, brytu gegn stjórnarskrá landsins. Ákveðið var að endurtaka forsetakosningarnar í Úkraínu eftir að úrslit kosninganna, sem haldnar voru 21. nóvember síðastliðinn, voru ógilt af hæstarétti landsins, vegna ásakana um víðtæk kosningasvik af hálfu stjórnvalda, en þar bar Viktor Janúkóvits, forsætisráðherra, sigurorð af Viktor Júsjenkó, helsta keppinaut sínum og leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Kosningasvikin í síðasta mánuði virtust einkum tengjast utankjörstaðaatkvæðagreiðslu. Fyrir skemmstu gerðu stjórnvöld í Úkraínu breytingar á kosningalögunum, sem takmörkuðu kosningar á heimilum fólks, og gerðu ráð fyrir að aðeins alvarlega fatlaðir einstaklingar gætu greitt atkvæði heima. Stjórnlagadómstóll taldi hins vegar að breytingarnar brytu gegn réttindum kjósenda og ógilti þær. Skoðanakannanir benda til þess að Júsjenkó fari með sigur af hólmi að þessu sinni. Þrátt fyrir óvissu um framkvæmd og lögmæti kosninganna, eru fulltrúar yfirkjörstjórnar bjartsýnir. Þeir telja útilokað að nokkur maður reyni að svindla að þessu sinni, eftir það sem á undan er gengið.
Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira