Margrét Gnarr keppir á heimsmeistarmótinu næstu helgi Ellý Ármanns skrifar 11. september 2013 10:45 Solla hjá Airbrush og Make up school sá um förðun og skartið er frá Kiss. Myndir/Jónas Hallgrímsson
Næstu helgi keppir Margrét Edda Gnarr á heimsmeistaramótinu í Kiev Úkraínu í fitness í -168 cm bikiní fitness flokki. Hún þarf að huga að óteljandi hlutum eins og brúnkunni, mataræðinu, gervinöglunum og að ekki sé minnst á andlitsförðuninni. Margrét fer út í dag en hún ætlar sér stóra hluti á heimsmeistarmótinu sem fram fer næstu helgi.Vinnur að því að tóna sig niður „Ég hef verið að undirbúa þetta mót meira eða minna síðan í byrjun þessa árs. Ég keppti í fyrra á þessu móti en var alls ekki í réttu formi fyrir bikiní flokkinn. Ég var með allt of mikinn vöðvamassa og ekki nógu skorin. Ég tok þó með mér heim gífurlega góða reynslu sem ég hef geta nýtt mér í þessum undirbúningi," segir Margrét. „Ég hef verið að vinna að því að ná að tóna mig niður og ná meira fíngerðara lúkki eins og þær líta út sem eru að vinna þessi stóru mót," segir hún. Líður vel þrátt fyrir niðurskurð„Ég hef aldrei verið jafn ánægð með formið. Ég byrjaði í þjálfun hjá Jóhanni Norðfjörð í sumar og hann hefur leitt mig í gegnum þennan niðurskurð. Öll plön voru byggð þannig upp að mér líði sem allra best andlega og líkamlega og mér hefur aldrei liðið jafn vel í niðurskurði."Heildarlúkkið skiptir öllu „Það er ekki nóg að vera í góðu formi heldur þarf heildar lúkkið að vera flott. Hár, förðun, ástand húðar og húðlitur, keppnisfatnaður, neglur og flott sviðsframkoma. Ég reyni alltaf að fá fagmenn til að sjá um mig en það er sumt sem ég þarf að gera sjálf þegar ég fer út að keppa." Krullujárn og græjur í styrk „Ég hef oftast séð um hárgreiðsluna sjálf en ég var ég svo heppin að landa nýlega sponsi hjá Label.M Ísland og HH Simonsen Ísland. Ég fékk fullt af flottum Label.M hársnyrtivörum og sléttu- og krullujárn frá HH Simonsen. Ég fékk svo í vikunni hárlengingar hjá hárlengingar.is til að fá meiri sídd og þykkt í hárið sem lítur mjög vel út á sviði. En allur stuðning skiptir miklu máli fyrir mig." Leit út eins og pandabjörn„Ég hef þurft að mála mig tvisvar sinnum fyrir mót. Fyrsta skiptið endaði mjög illa. Ég tók bara eitthvað förðunardót með mér út og rétt áður en ég fór á svið var mér sagt að ég liti út einsog pandabjörn. Annað skiptið gekk örlítið betur en annars fer ég alltaf í förðun til Sillu Make up snillingi. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af NYX vörunum og er svo ótrúlega þakklát að vera styrkt af NYX fyrir næstkomandi mót. Þetta eru geðveikar vörur og þær eru „cruelty free'' sem ég heillast mikið af. Solla hjá Airbrush og Make up school tók mig í förðunarkennslu í vikunni en ég lærði helling af henni þannig ég ætti ekki að líta út einsog pandabjörn aftur."Andlitsmeðferð og læti„Fyrir mót fer ég í AHA andlitssýrumeðferð hjá snyrtistofunni Mízú. Húðin getur orðið mjög þurr og þreytt í svona niðurskurði og eftir þessa meðferð ljómar húðin og förðunin lítur líka mikið betur út eftir svona meðferð," segir Margrét. Brúnkan skiptir líka máli „Ég nota svo Jan Tana skrúbb á hverjum degi seinustu viku fyrir mót og svo nota ég Jan Tana keppnislit en ég nota Brasilian Tan sem undirlit," útskýrir Margrét þegar talið berst að brúnkunni. En fatnaðurinn? „Ég verð í flottu grænu bikiní sem Herdís Jóna eigandi Fantom verslun steinaði fyrir mig og allt skart fæ ég frá KISS í Kringlunni," segir hún. Hvað með þessar svakalegu neglur sem eru áberandi á fitnesskeppendum? „Ég hef alltaf fengið gervineglur en mér finnst gervineglur fara svo illa með mínar eigin neglur þannig ég hef ákveðið að vera með mínar eigin neglur á mótinu en fer í handa og fórsnyrtingu hjá Snyrtistofunni Mízú." „Í niðurskurði þarftu að hafa mataræðið á hreinu og nota góð fæðubótarefni. Ég fæ að borða á veitingarstaðnum Nings á hverjum degi og ég nota aðeins bestu fæðubótaefnin en þau eru Optimum Nutrition sem ég fæ hjá Perform.is. Ég fæ síðan öll mín ræktarföt frá Reebok Ísland og BN Shape. Marko Merki sér svo alltaf um að ég sé í vel merktum fötum bæði fyrir mót og á æfingum. Ég fer í ljós reglulega fram að móti hjá Stjörnusól en keppendur frá Íslandi sem keppa á heimsmeistaramótinu eru styrktir af WOW air. Svo fer ég reglulega í hnykkingu hjá Kírópraktorstofu Íslands. Þetta eru margir styrktaraðilar en án þeirra gæti ég þetta ekki," segir Margrét að lokum.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Sjá meira