30 dagar til að ljúka málum Jóhann K. Jóhannsson skrifar 14. ágúst 2016 18:45 Vísir/Ernir
Formaður Vinstri Grænna gerir alvarlegar athugasemdir við ríkisfjármálaáætlun stjórnarflokkanna sem lögð hefur verið fram. Ekki sé tekist á við málefni eins og kjör aldraðra, samgöngu- og menntanmál. Þá hafi frumvörp um afnám hafta og aðgerðir í kringum verðtrygginguna ekki verið lögð fram. Það verður knappur tími sem alþingi hefur til þess að ljúka þeim málum sem á borði hennar liggja fyrir kosningar 29. október næstkomandi. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, gaf það út í vikunni að fjárlagafrumvarp yrði ekki lagt fram fyrir kosningar. En nú þegar hefur verið lögð var ríkisfjármálaáætlun og fjármálastefna fyrir hið opinbera næstu fimm árin. „Ég tel í raun og veru þetta skynsamlega ráðstöfun hjá fjármálaráðherra. Það liggur fyrir að það er búið að boða til kosninga. Ný ríkisstjórn hver sem hún verður mun þurfa að takast á við þetta verkefni. Áætlanir núverandi ríkisstjórnar liggja auðvitað nokkuð klárar fyrir í þeirri ríkisfjármálaáætlun sem liggur fyrir okkur að ljúka afgreiðslu á,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar – Grænt framboð. Katrín gerir alvarlegar athugasemdir við þá áætlun sem nú hefur verið lögð fram. „Það er margt sem ekki er tekið á í þessari áætlun og ég nefni sérstaklega kjör öryrkja og aldraðra, ég nefni samgöngumálin sem ég held að allir séu sammála um að þurfi að ráðast í og það kalli á aukna fjárfestingu og ég nefni skólamál, menntamál framhaldsskóla og háskóla þar sem ekki er gert ráð fyrir neinni uppbyggingu,“ segir Katrín. Fjármálaráðherra í næstu ríkisstjórn mun hafa skamman tíma til afgreiðslu á fjárlagafrumvarpi en það þarf að vera klárt fyrir næstu áramót. „Það liggur fyrir að það verður stórt verkefni fyrir þá ríkisstjórn sem tekur við að leggja fram fjárlög og afgreiða þau. En það er gerlegt,“ segir Katrín Ráðuneytin hafa þegar undirbúið ákveðnar tillögur í fjárlögum og kemur það til með að koma í hlut nýrrar ríkisstjórnar að ákveða hvaða áherslur verða lagðar í ríkisrekstrinum. Þar sem kjördagur hefur verið ákveðinn skal rjúfa þing þing 45 dögum áður eða 14. september næstkomandi. Nokkur mál hafa enn ekki verið lögð fram eins og málefni um afnám hafta og aðgerðir í kringum verðtrygginguna. Alþingi hefur aðeins 30 daga til stefnu. Forseti alþingis gerir ráð fyrir að mál sem tekin hafa verið til fyrstu umræðu og mál sem hafa verið afgreidd úr nefndum komi til með að setja svip sinn á störf alþingis í komandi viku. „Ríkisstjórnin hefur boðað tiltekin mál sem að hún leggur áherslu á að hljóti afgreiðslu nú í haust og ég vænti þess og vona það auðvitað að þau mál komi sem allra fyrst fram. Þingið getur í sjálfu sér starfað alveg fram að kosningum. Það er auðvitað æskilegt að flokkarnir hafi möguleika til þess að heyja sína kosningabaráttu en þetta ræðst á því hvernig vinnan mun ganga í þinginu og hvernig andrúmsloftið verður,“ segir Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis.
Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Fleiri fréttir „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Sjá meira