Afganir lýsa yfir þjóðarsorg vegna árásarinnar í Kabúl Atli Ísleifsson skrifar 24. júlí 2016 16:00 Fórnarlömb árásarinnar voru borin til grafar í dag. Vísir/AFP
Afgönsk stjórnvöld hafa lýst yfir þjóðarsorg í landinu eftir sprengjuárás gærdagsins þar sem áttatíu manns hið minnsta fórust og rúmlega 260 særðust. Fórnarlömbin létust í samhæfðri árás þriggja manna í friðsamlegri mótmælagöngu í höfuðborginni Kabúl, en þau voru borin til grafar í dag. Ashraf Ghani, forseti Afganistans, hét því að hefna árásarinnar en hryðjuverkasamtökin ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á henni. Ghani sagðist mjög hryggur vegna árásarinnar, sér í lagi þar sem hún beindist að óbreyttum borgurum sem vildu láta rödd sína heyrast. Fórnarlömbin voru fyrst og fremst Hasarar og sjítar sem voru að mótmæla niðurskurðaráformum stjórnvalda sem höfðu nýverið lýst því yfir að hætt yrði við lagningu spennulínu um héraðið Bamiyan sem er eitt fátækasta hérað landsins. BBC hefur eftir heimildarmanni innan afganska innanríkisráðuneytisins að þrír menn hefðu ætlað sér að framkvæma árásina en að einungis einum þeirra hefði tekist að sprengja sig í loft upp. Sprengjuvesti annars mannsins sprakk aldrei og öryggissveitir drápu þann þriðja. Um þrjú þúsund mótmælendur tóku þátt í göngunni. Hasarar mynda þriðja stærsta þjóðarbrotið í Afganistan og hafa sætt ofsóknum um áratuga skeið. Þeir eru að stærstum hluta sjítamúslimar og eru af mongólskum uppruna. Hasarar eru jafnframt fjölmennir í Íran, en írönsk stjórnvöld hafa fordæmt árásina. Utanríkisráðherrann Javad Zarif segir á Twitter-síðu sinni að nauðsynlegt sé fyrir súnnía og sjíta að sameinast í baráttunni við öfgamennina.SVT segir árás gærdagsins þá mannskæðustu í Kabúl allt frá árinu 2001.
Tengdar fréttir Sextíu látnir í sprengjuárás í mótmælagöngu í Kabúl Þúsundir Hasara höfðu komið saman til að krefjast þess að spennulína yrðu lögð um héraðið Bamiyan, einu vanþróaðasta héraði Afganistan. 23. júlí 2016 13:30 Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Fleiri fréttir Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Sjá meira
Sextíu látnir í sprengjuárás í mótmælagöngu í Kabúl Þúsundir Hasara höfðu komið saman til að krefjast þess að spennulína yrðu lögð um héraðið Bamiyan, einu vanþróaðasta héraði Afganistan. 23. júlí 2016 13:30