Yfirmenn gríska skemmtiferðaskipsins ákærðir 7. apríl 2007 17:50
Skipstjóri og fimm yfirmenn gríska skemmtiferðaskipsins sem fórst á gríska Eyjahafinu í fyrradag hafa verið ákærðir fyrir vanrækslu. Tveggja er enn saknað en um sextán hundruð manns voru um borð í skipinu. Hátt í tólfhundruð farþegar og um fjögurhundruð áhafnarmeðlimir voru um borð í skemmtiferðaskipinu Sea Dimond þegar það strandaði nærri grísku eyjunni Santorini. Björgunaraðgerðir tóku aðeins þrjár klukkustundir en á þeim tíma tókst að bjarga nærri sextán hundruð manns úr sökkvandi skipinu. Gríski herinn, fraktskip og fiskimenn sem í grennd voru aðstoðuðu við aðgerðirnar. Flestir um borð voru Bandaríkjamenn en einnig voru þar hópar Spánverja og Kanadamanna. Í dag hafa björgunarsveitir leitað franskra feðgina, sextán ára stúlku og föður hennar, en þau eru þau einu sem saknað er. Farþegar sem um borð voru segja skort hafa verið á björgunarvestum og að lítil hjálp hafi verið í áhafnarmeðlimum. Ferðamannaráðherra Grikklands sagði björgunarmenn hafa unnið þrekvirki en ljóst sé að þeir sem ábyrgð bera á slysinu verða látnir svara til saka. Yfirmennirnir sex eru ákærðir fyrir að hafa með gáleysi sínu valdið slysinu, að hafa brotið alþjóðlegar öryggisreglur skipa og fyrir að menga umhverfið. Þeir eru allir Grikkir og verði þeir fundir sekir eiga þeir yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi. Skipið var smíðað fyrir rúmlega tuttugu árum og segja eigendur skipsins að viðhald þess hafa verið í fullkomnu lagi.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Sjá meira