Myndi ekki nota Özil og segir að tími hans hjá Arsenal sé liðinn Anton Ingi Leifsson skrifar 1. apríl 2020 08:00 Mesut Özil biður fyrir leik Arsenal og Manchester City. Getty/Stuart MacFarlane
Andrey Arshavin verður væntanlega lengi vel þekktur í herbúðum Arsenal eftir að hafa skorað fjögur mörk í 4-4 jafntefli gegn Liverpool árið 2009. í nýju viðtali segir hann að Arsenal-liðið sé ekki nægilega gott varnarlega og að Mesut Özil sé of hægur. Arshavin var í viðtali við 888 Sport þar sem hann fór yfir stöðuna bæði hjá Arsenal og Özil. Þjóðverjinn var talinn á útleið er Unai Emery stýrði liðinu en eftir að Mikel Arteta tók við stjórnartaumunum hefur hann fengið líflínu. „Sem leikmaður ber ég auðvitað mikla virðingu fyrir honum. Hann er heimsklassaleikmaður en hann hægir of mikið á leiknum. Ég myndi frekar nota einhvern annan leikmenn. Mikel sér öðruvísi á hlutina og notar hann mikið. Hann hefur bætt sig hjá Arsenal en ég sé hann ekki þarna í framtíðinni,“ sagði Rússinn. Andrey Arshavin believes 'slow' Mesut Ozil's time at Arsenal is up https://t.co/emUAWMRYhW— MailOnline Sport (@MailSport) March 31, 2020 Arsenal situr í 9. sæti deildarinnar og hefur verið í vandræðum á leiktíðinni. Hinn rússneski Arshavin segir morgunljóst hvað vandamálið sé hjá félaginu. Það sé það sama og var þegar hann var á mála hjá Lundúnarliðinu. „Það er ekkert jafnvægi í liðinu. Sóknarlega eru þeir mjög góðir og spila sóknarlega mjög flottan fótbolta og það er gaman að horfa á þá en varnarlega eru þeir mjög veikir og einnig þegar ég var þarna.“ „Stundum er það vegna meiðsla og stundum vantar reynsluna en ég veit ekki afhverju þetta breytist ekki.“
Enski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport Fleiri fréttir Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Sjá meira