Milan stal sigrinum undir lokin | Andri Fannar byrjaði hjá Bologna

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
AC Milan vann dramatískan sigur á Lazio í kvöld.
AC Milan vann dramatískan sigur á Lazio í kvöld. Marco Luzzani/Getty Images

AC Milan tryggði sér sigur gegn Lazio með marki undir lok leiks. Þá var Andri Fannar Baldursson í byrjunarliði Bologna sem kom til baka gegn Atalanta, lokatölur þar 2-2.

Þetta var fyrsti leikur Andra Fannars í byrjunarliði Bologna. Andri Fannar var tekinn af velli á 65. mínútu er staðan var 2-0 yfir Atalanta. Luis Muriel skoraði bæði mörk Atalanta en aðeins var mínúta milli marka.

Það var svo Takehiro Tomiyasu sem minnkaði muninn fyrir Bologna á 73. mínútu og Nehuén Paz jafnaði metin tæpum tíu mínútum síðar. Staðan orðin 2-2 og reyndust það lokatölur leiksins.

AC Milan komst snemma leiks í 2-0 er liðið tók á móti Lazio. Hakan Çalhanoğlu lagði fyrra markið upp á Ante Rebić og Tyrkinn skoraði svo síðara markið. Luis Alberto minnkaði muninn í fyrri hálfleik og Ciro Immobile jafnaði metin í þeim síðari.

Theo Hernández skoraði svo sigurmark leiksins þegar komnar voru tvær mínútur fram yfir venjulegan leiktíma. Çalhanoğlu aftur með stoðsendingu og kom því að öllum mörkum leiksins.

Lokatölur 3-2 og AC Milan heldur toppsætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira