Slakt gengi Juventus heldur á­fram

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Paulo Dybala hefur átt betri daga en í dag.
Paulo Dybala hefur átt betri daga en í dag. Giuseppe Maffia/Getty Images

Álvaro Morata kom gestunum yfir á 21. mínútu með frábæru marki. Hann tók vel við knettinum eftir góða sendingu Federico Chiesa, fíflaði varnarmenn Benevento og skoraði með góðu vinstrifótar skoti niðri í fjærhornið úr þröngu færi.

Staðan 1-0 og meistararnir í góðum málum. Það virtist stefna í að Juventus yrði 1-0 yfir hálfleik en Gaetano Letizia jafnaði metin fyrir heimamenn þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegum leiktíma í fyrri hálfleik.

Staðan 1-1 í hálfleik og reyndust það lokatölur leiksins þó ótrúlegt megi virðast. Juventus var 64 prósent með boltann í leiknum og átti alls 16 skot. Aðeins fimm þeirra fóru hins vegar á markið og tókst þeim ekki að knýja fram sigur gegn nýliðunum.

Til að gera daginn enn verri þá fékk Morata beint rautt spjald á 97. mínútu leiksins fyrir að rífa kjaft við dómara leiksins.

Lokatölur 1-1 og Juventus því aðeins tíu inn á vellinum er flautað var til leiksloka.

Juventus er sem stendur með 17 stig í 4. sæti Serie A-deildarinnar, þremur stigum á eftir AC Milan sem á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira