Foden skaut City á­fram | Unnið alla fjóra leiki sína til þessa

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Man City fagna sigurmarki kvöldsins.
Leikmenn Man City fagna sigurmarki kvöldsins. Tom Flathers/Getty Images

Gott gengi Manchester City í Meistaradeild Evrópu heldur áfram en liðið vann Olympiakos á útivelli í kvöld. Lokatölur í Grikklandi 0-1 og Man City komið í 16-liða úrslit þó enn séu tvær umferðir eftir af riðlakeppninni.

Leikur kvöldsins var engin flugeldasýning en Phil Foden skoraði eina mark leiksins á 36. mínútu eftir sendingu Raheem Sterling. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks og í raun eina mark leiksins.

Lokatölur 1-0 City í vil sem er nú með 12 stig á toppi C-riðils og þar af leiðandi með sex stiga forystu á Porto sem er í 2. sæti. Porto mætir Marseille nú í kvöld.

Gott gengi City í Meistaradeildinni heldur því áfram þó illa gangi heima fyrir í Englandi. City hefur unnið alla fjóra leiki sína í keppninni til þessa og þarf mikið að gerast til að þeir vinni ekki C-riðil.

Var þetta í 12. skipti sem lærisveinar Pep Guardiola komast upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar í 12 tilraunum. Spænski þjálfarinn því með 100 prósent árangur er kemur að því að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira