Stórmeistarajafntefli á Etihad

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það var hart barist í kvöld en liðin skiptu stigunum bróðurlega á milli sín.
Það var hart barist í kvöld en liðin skiptu stigunum bróðurlega á milli sín. Clive Brunskill/Getty Images

Manchester City og Liverpool gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í stórleik umferðarinnar í enska boltanum. Bæði mörkin, sem og klúðruð vítaspyrna, litu dagsins ljós í fyrri hálfleiknum sem var fjörugur.

Liverpool fékk vítaspyrnu eftir tólf mínútu. Sadio Mane lék þá á Kyle Walker sem gerðist svo brotlegur. Mo Salah steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi framhjá varnarlausum Ederson.

Jöfnunarmarkið kom á 31. mínútu. Eftir sendingu Kevin De Bruyne snéri Gabriel Jesus laglega í teignum, framhjá Trent Alexander Arnold, og skoraði með fínu skoti.

City fékk svo dauðafæri í að komast fyrir hlé er dæmd var vítaspyrna. Dæmd var hendi á Joel Gomez og eftir skoðun VARsjánnar var það niðurstaðan. Belginn steig sjálfur á punktinn en skaut framhjá.

Rólegra var um að lítast í síðari hálfleik en City var meira með boltann og fékk hættulegri færi. Fleiri urðu mörkin ekki og stórmeistarajafntefli niðurstaðan, 1-1.

Liverpool er því með sautján þriðja í öðru sætinu, stigi á eftir toppliði Leicester, og með jafn mörg stig og Tottenham sem er einnig í öðru sætinu. Man. City er í ellefta sætinu með tólf stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira