Erlent

Trump-liðar dreifa ósannindum og grafa undan kosningunum

Samúel Karl Ólason skrifar
Stuðningsmenn Trump við mótmæli fyrir utan þar sem verið var að telja kjörseðla í Las Vegas.
Stuðningsmenn Trump við mótmæli fyrir utan þar sem verið var að telja kjörseðla í Las Vegas. AP/John Locher

Þegar forskot Donald Trump hófst að dragast saman í mikilvægum ríkjum, með talningu utankjörfundaratkvæða, byrjuðu bandamenn forsetans, stuðningsmenn hans og jafnvel hann sjálfur, að dreifa ósannindum um kosningarnar. Breytingar fylgis frambjóðenanna þótti til marks um gífurlega spillingu og bellibrögð Demókrata sem voru jafnvel sakaðir um að framleiða atkvæði í skjóli nætur.

Ásakanir um spillingu og kosningasvik fóru eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla. Meðal annars má nefna færslur um að í Wisconsin væru atkvæðin orðin fleiri en skráðir kjósendur. Þar höfðu óprúttnir netverjar sett talin atkvæði í þessum kosningum í samræmi við skráða kjósendur í kosningunum 2018.

Trump sjálfur, og aðrir, héldu því fram að Biden hefði fengið hundrað prósent af vel yfir hundrað þúsund atkvæðum í Michigan. Uppruni þeirra ásakana virðist eiga rætur í innsláttarvillu. Höfundur upprunalega tístsins eyddi því en ósannindin voru þegar í mikilli dreifingu meðal stuðningsmanna Trump.

„Þeir eru að finna Biden atkvæði út um allt. Í Pennsylvaníu, Wisconsin og Michigan. Svo slæmt fyrir landið okkar!“ sagði Trump á Twitter. Framboð hans höfðaði svo mál í öllum ríkjunum og segir AP fréttaveitan að þar sé um að ræða undirbúning fyrir áætlanir Trump um að að draga úrslit kosninganna í efa.

Hið rétta er þó að það er alvanalegt að telja atkvæði í nokkra daga og jafnvel vikur eftir kosningar í Bandaríkjunum. Mikill fjöldi utankjörfundaratkvæða hefur gert það erfiðara og víða eru reglur um að kjörstjórnir megi ekki byrja að telja atkvæði fyrr en á sjálfan kjördag.

Það hefur lengi legið fyrir að kjósendur Demókrataflokksins og Joe Biden, hafa verið líklegri til að nýta sér póstatkvæði en kjósendur Donald Trump, sem hefur gagnrýnt notkun slíkra kjörseðla harðlega á undanförnum mánuðum.

AP segir einnig að sérfræðingar hafi greint mikla aukningu í svokallaðri upplýsingaóreiðu á samfélagsmiðlum í kjölfar yfirlýsinga Trump um svik og pretti.

Á Twitter var ásökunum um kosningastuld dreift minnst 221 þúsund sinnum á kjördag. Það var gert tíu þúsund sinnum á mánudeginum. Myllumerkjum eins og #StopTheSteal var dreift nærri því 120 þúsund sinum á kjördag og oftast í tengslum við Pennsylvaníu og Philadelphia.

Eric Trump, sonur forsetans, dreifði myndbandi sem átti að sýna einhvern brenna kjörseðla. Þar var um að ræða sviðsett myndband af aðila sem var að brenna sýnishorn af kjörseðlum. Ekki raunverulega kjörseðla.

Eric staðhæfði einnig á samfélagsmiðlum að faðir hans hefði unnið í Pennsylvaníu og tók Kayleigh McEnany, talskona Hvíta hússins, undir það. Þá hafði enginn formlegur aðili eða fjölmiðill komist að þeirri niðurstöðu.

Starfsmenn Facebook og Twitter hafa reynt að draga úr útbreiðslu þessa áróðurs en það hefur ekki borið árangur. Dreifing þessara ásakana er mikil.

Samhliða þessum áróðri hefur framboð Trump sent skilaboð til minnst níu milljóna Bandaríkjamanna þar sem því er haldið fram að Demókratar séu að reyna að stela kosningunum og er fólkið beðið um að gefa framboðinu peninga svo hægt sé að verjast þessum „þjófnaði“.

Þetta kemur fram í frétt Washington Post sem segir að samtök sem styðji við bakið á Trump hafi sömuleiðis sent mikinn fjölda sambærilegra smáskilaboða og þingmaðurinn Matt Gaetz, einn ötulasti stuðningsmaður Trump á þingi, hafi gert það einnig.


Tengdar fréttir

Allt útlit fyrir að meirihlutinn haldi í öldungadeildinni

Allt útlit er fyrir það repúblikanar muni áfram vera í meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings. Demókrötum hefur aðeins tekið að bæta við sig einu sæti en hefðu þurft þrjú til fjögur, eftir því hver sigrar forsetakosningunum, til að ná meirihluta.

„Lýðræðið er hjartsláttur þessarar þjóðar“

Joe Biden, forsetaefni Demókrataflokksins, ávarpaði bandarísku þjóðina rétt í þessu og sagðist þess viss að þegar talningu atkvæða yrði lokið stæði hann uppi sem sigurvegari. „Kæru landar. Í gær sannaðist enn og aftur að lýðræðið er hjartsláttur þessarar þjóðar,“ sagði Biden m.a.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×