Leicester skoraði fjögur gegn Leeds og hoppaði upp í 2. sætið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vardy skorar þriðja mark Leicester.
Vardy skorar þriðja mark Leicester. Peter Powell/PA Images

Leicester er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir fyrstu sjö umferðirnar. Þeir náðu í þrjú stig á Elland Road í kvöld er liðið vann 4-1 útisigur á Leeds United.

Harvey Barnes kom Leicester yfir eftir rúmlega hundrað sekúndna leik. Eftir skelfileg mistök í vörn Leeds fékk Jamie Vardy boltann. Hann var þó óeigingjarn og kom boltanum á Barnes sem skoraði.

Á 21. mínútu varð staðan 2-0. Youri Tielemans skoraði. Marc Albrighton gaf þá frábæra fyrirgjöf fyrir markið sem Jamie Vardy skallaði. Illan Meslier varði þó boltann fyrir fætur Tielemans sem kom boltanum í netið.

Staðan var 2-0 í hálfleik en það var kraftur í Leeds í síðari hálfleik. Þeir náðu inn marki á 48. mínútu er Stuart Dallas skoraði og þeir pressuðu Leicester menn. Pablo Hernandez átti m.a. skot í slá.

Það voru hins vegar gestirnir frá Leicester sem gerðu út um leikinn stundarfjórðungi fyrir leikslok. Varamennirnir James Maddison og Cengiz Under bjuggu til markið; Maddison gaf flotta sendingu á Under sem sendi smekklega sendingu á Vardy sem skoraði.

Leicester voru ekki hættir. Þeir fengu vítaspyrnu á 90. mínútu er James Maddison var tekinn niður í teignum. Tielemans fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Lokatölur 4-1.

Leicester er eins og áður segir í öðru sætinu. Þeir eru með fimmtán stig, stigi á eftir toppliði Liverpool, en Leeds er í 12. sætinu með tíu stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira