Jafnt hjá Wolves og Gerrard í erfiðri stöðu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gerrard á hliðarlínunni í kvöld.
Gerrard á hliðarlínunni í kvöld. vísir/getty
Wolves er í ágætri stöðu eftir fyrri leikinn gegn Olympiakos á útivelli en liðin gerðu 1-1 jafntefli í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

Leikið var fyrir luktum dyrum í Grikklandi en heimamenn misstu mann af velli með rautt spjald á 29. mínútu er Ruben Semedo fékk reisupassann. Staðan var þó markalaus í hálfleik.

Það voru þó heimamenn sem komust yfir. Markið skoraði Youssef El Arabi á 54. mínútu en þrettán mínútum síðar jafnaði Pedro Neto metin og lokatölur 1-1.

Í Skotlandi vann Bayer Leverkusen 3-1 sigur á Steven Gerrard og lærisveinum í Rangers. Kai Havertz kom Leverkusen yfir úr ódýrri vítaspyrnu á 37. mínútu og Charles Aranguiz tvöfaldaði forystuna hálftíma síðar.

Heimamenn í Glasgow voru ekki af baki dottnir. Þeir minnkuðu muninn á 75. mínútu með marki George Edmundson en Leon Bailey skoraði þriðja mark Leverkusen á 88. mínútu og gerði nánast út um einvígið.

Shaktar Donetsk vann svo 2-1 sigur á Wolfsburg í Þýskalandi. Junior Moraes kom Shaktar yfir á 17. mínútu en John Anthony Brooks jafnaði á 48. mínútu. Í millitíðinni höfðu bæði lið brennt af vítaspyrnu. Sigurmarkið skoraði Marcus Bashia á 73. mínútu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira