Tíu ár síðan móðir með ellefu ára son óttaðist um líf sitt á Langjökli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. janúar 2020 06:15 Mike og Beata Scott á blaðamannafundi í febrúar árið 2010. Beata átti erfitt með að tjá sig við fjölmiðla og grét mikið.
Þau urðu viðskila við hóp sinn í blindbyl á Langjökli. Þau grófu sig í fönn og leituðu skjóls bak við vélsleðann í átta klukkustundir. Ferðaþjónustufyrirtækið fór í ferðina þrátt fyrir slæma veðurspá. Ellefu ára barn fékk kalsár. Þannig mætti draga saman rúmlega viku gamalt mál en sömuleiðis tíu ára gamalt mál þar sem mæðgin frá Skotlandi, móðir með ellefu ára son sinn, sluppu með skrekkinn í vélsleðaferð á Langjökul. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og kannski enn meiri þar sem nokkrum vikum fyrr hafði orðið banaslys á jöklinum. Alls hafa því fjögur mál komið upp undanfarin tíu ár á Langjökli þar sem fleiri hundruð björgunarsveitarmenn hafa leitað fólks. Enginn hefur týnt lífi en ferðalangar hafa í öllum tilfellum óttast um líf sitt. Sex ára barn í hópnum Ferð Mountaineers of Iceland með 39 ferðamenn á Langjökul í síðustu viku vakti mikla athygli. Farið var í ferðina þrátt fyrir slæma veðurspá enda töldu forsvarsmenn Mountaineers of Iceland vel mögulegt að ljúka ferðinni áður en slæma veðrið skylli á. Endurteknar seinkanir urðu til þess að á leiðinni til baka komst fólkið ekkert áfram. Í hópnum var fólk af ýmsum þjóðernum og allt niður í sex ára gamalt. Haukur Herbertsson, rekstrarstjóri Mountaineers of Iceland, í viðtali við fréttastofu daginn eftir ferðina. Forsvarsmenn Mountaineers of Iceland hafa viðurkennt að mistök hafi verið gerð. Annars vegar að fara í ferðina til að byrja með og hins vegar að óska ekki eftir aðstoð björgunarsveita fyrr en sex klukkustundum eftir að fólkið varð strand á jöklinum. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi. Dæmdar skaðabætur Þann 5. janúar 2017 fyrir rétt rúmum þremur árum voru björgunarsveitir Landsbjargar kallaðar út síðdegis vegna tveggja einstaklinga sem höfðu orðið viðskila við hóp vélsleðafólks á Langjökli. Sextíu manns tóku þátt í leitinni. Áströlsku hjónin Gail og David Wilson urðu viðskila við hóp sinn í ferðinni en enginn tók eftir því þegar það gerðist. Fór svo að þau stefndu fyrirtækinu og voru þeim dæmdar skaða- og miskabætur. Á annað hundrað manns tóku þátt í leit að hjónunum á Langjökli í janúar 2017.Kristinn Ólafsson Lagt hafði verið á jökulinn þrátt fyrir stormviðvörun. Innanlandsflug lá niðri á landinu þennan dag. Leiðsögumennirnir töldu þó veðrið ekki vera því til fyrirstöðu að fara í ferðina. Eftir að lagt var af stað versnaði veðrið síðan til muna. Náði ekki beygju vegna þreytu Fyrirtækið Snowmobile stóð fyrir stóð fyrir vélsleðaferð sextán ferðamanna þann 14. febrúar 2010. Með í för var hin skoska Beata Scott og ellefu ára sonur hennar Jeremy. Hún lýsti því á blaðamannafundi hvernig hún hefði verið búin að gefa upp alla von um að bjargast. Lagt var upp í ferðina í birtu á sunnudegi en þegar tók að kvölda skall á mikill blindbylur. Beata og Jeremy urðu viðskila við hópinn þegar hún náði ekki beygju vegna þreytu. Úr umfjöllun Fréttablaðsins í febrúar 2010.Tímarit.is „Ég reyndi að öskra,“ útskýrði Beata á fundi með blaðamönnum. „Jeremy brast strax í grát og ég fylltist örvæntingu.“ Hún sagðist hafa reynt að fylgja hópnum á eftir en snjósleðinn einfaldlega drepið á sér. Þau biðu, hrópuðu á hjálp og töldu að einhver úr hópnum kæmi að sækja þau. „Fyrst réð örvæntingin ríkjum. Mig langaði mest að gráta. En svo skyndilega, án umhugsunar, hófst ég handa,“ sagði hún. Nú þurfum við að byggja okkur snjóhús Beata lýsti því hvernig hún hefði fengið hjálp frá syni sínum við að velta sleðanum. Þannig hafi þau skapað sér skjólvegg. „Ég sagði við hann: Komdu Jeremy. Nú þurfum við að byggja okkur snjóhús. Við byrjuðum að reisa vegg umhverfis sleðann og notuðum hlífðarplastið af sleðanum sem skóflu. Vindurinn feykti henni því miður fljótlega úr höndunum á mér,“ sagði Beata. Beata reif þá vélarhlífina af sleðanum, lagðist ofan á son sinn og skýldi þeim með hlífinni í heilar átta klukkustundir. Þau hafi stytt sér stundir með orðaleikjum og reynt að fanga athygli björgunarþyrlu sem þau sáu nokkrum sinnum. Það bar ekki árangur. Rétt áður en þau fundust loksins var Beata að eigin sögn búin að gefa upp alla von. Jeremy var einnig viss um að mæðginin myndu deyja. Líktu björgunarsveitum við ofurmenni Fram kom í máli Mike Scott, eiginmanns Beötu, að hann hefði ekki áttað sgi á því að kona hans og sonur væru horfin fyrr en við komuna niður af jöklinum. Hann var verulega ósáttur við ferðaþjónustufyrirtækið Snowmobile fyrir að hafa lagt af stað í ferðina þrátt fyrir að spáð væri illviðri síðar um daginn. Þá hefðu ferðalangarnir ekki verið varaðir við slæmu veðri. Líkt og svo oft spöruðu hjónin ekki hrósið í garð björgunarsveitarmanna en um þrjú hundruð slíkir komu að leitaraðgerðum. Var björgunarsveitum líkt við ofurmenni. Ekkert stöðvaði þau. Lögreglan á Selfossi, nú lögreglan á Suðurlandi, fékk málið til rannsóknar en það var rannsakað sem hvert annað slys. Voru forsvarsmenn Snowmobile kallaðir til skýrslutöku. Hjónin sögðust á sínum tíma vera að skoða hvort tilefni væri til að grípa til aðgerða gagnvart Snowmobile. Það virðist ekki hafa verið gert. Arctic Adventures festi árið 2015 kaup á Snowmobile. Arctic adventures og Mountaineers of Iceland eru risarnir tveir í vélsleðaferðum á Langjökul.
39 bjargað á Langjökli Ferðamennska á Íslandi Mæðgin týndust á Langjökli Tengdar fréttir Vilja meira en milljón í bætur vegna vélsleðaferðar Mountaineers of Iceland Tveir ferðamenn sem fóru í vélsleðaferð með Mountaineers of Iceland á þriðjudag munu leggja fram bótakröfu sem áætlað er að muni nema yfir einni milljón króna á mann. 10. janúar 2020 19:57 Tveggja barna móðir öskureið og skilur ekki að svona geti gerst á Íslandi Virginia Galvai frá Brasilíu segist reið úr í forsvarmenn Mountaineers of Iceland eftir að hafa ásamt ungum drengjum sínum tveimur lent í háska á Langjökli í vélsleðaferð. 8. janúar 2020 14:25 Störukeppni í vonskuveðri uppi á Langjökli Reyndur leiðsögumaður segir það vekja mann til umhugsunar hve tregar ferðaskrifstofur séu til að hætta við ferðir þrátt fyrir slæmt veður og aðstæður. 8. janúar 2020 15:47 Mest lesið Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Erlent Raunvirði íbúða lækkar á ný Innlent Mótmælir breyttu fyrirkomulagi í nemendaráðskosningum Innlent „Hver ætlar að fylgjast með því að hann komi ekki til baka?“ Innlent Grunaður um að fara inn á heimili fjölskyldu og brjóta þar á barni Innlent Hundruð milljóna vanti: „Þetta er hreint misrétti“ Innlent Ók á vegavinnumann og flúði vettvang Innlent Kimmel tekinn af dagskrá: Donald Trump grafi undan lýðræðinu Innlent Vítamínmarkaðurinn á Íslandi eins og villta vestrið Innlent Biðla til fólks að taka vel á móti sölumönnum þó svikahrappar séu á ferð Innlent Fleiri fréttir Raunvirði íbúða lækkar á ný Mótmælir breyttu fyrirkomulagi í nemendaráðskosningum Grunaður um að fara inn á heimili fjölskyldu og brjóta þar á barni Ók á vegavinnumann og flúði vettvang Biðla til fólks að taka vel á móti sölumönnum þó svikahrappar séu á ferð Kimmel tekinn af dagskrá: Donald Trump grafi undan lýðræðinu Bókun 35 fór hnökralaust í gegnum fyrstu umræðu en gæti reynt á í næstu Hundruð milljóna vanti: „Þetta er hreint misrétti“ „Hver ætlar að fylgjast með því að hann komi ekki til baka?“ Vítamínmarkaðurinn á Íslandi eins og villta vestrið Tjáir sig um brottvísun Kourani og tekist á um Jimmy Kimmel Tóku fyrstu skóflustungu að næsta áfanga miðbæjarins á Selfossi „Ýtnir og frekir“ útlendingar þykjist heyrnarlausir til að svíkja af fólki fé BSRB fordæmir áform ríkisstjórnar um að skerða réttindi starfsfólks Piltur stakk mann ítrekað en var sýknaður af tilraun til manndráps Hafnir landsins þurfa hátt í hundrað milljarða næstu fimmtán árin Harma áform stjórnvalda sem heimila hækkun gjalda Innan við helmingur segist trúaður Guðjón Ragnar skipaður skólameistari „Ég er bara eins og ég er og tala bara eins og ég tala“ Inga á móti neitunarvaldi sveitarfélaga „Ævintýralegur ávinningur“ og ráðherra segir auðvelt að sækja um Kjósa um sameiningu sveitarfélaganna í lok nóvember og desember Gísli Marteinn „alls ekki“ á leið í framboð Vilja að átján ára fái að kaupa áfengi Ráðherra boðar stórtækar breytingar og Viðskiptaráð vill finna olíu Hafnar kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar Svona gæti Sundabraut litið út: Brú eða göng meðal valkosta Stefnir í að forystan verði óbreytt Gekk fram á dauða seli: „Svona á enginn að gera“ Sjá meira
Vilja meira en milljón í bætur vegna vélsleðaferðar Mountaineers of Iceland Tveir ferðamenn sem fóru í vélsleðaferð með Mountaineers of Iceland á þriðjudag munu leggja fram bótakröfu sem áætlað er að muni nema yfir einni milljón króna á mann. 10. janúar 2020 19:57
Tveggja barna móðir öskureið og skilur ekki að svona geti gerst á Íslandi Virginia Galvai frá Brasilíu segist reið úr í forsvarmenn Mountaineers of Iceland eftir að hafa ásamt ungum drengjum sínum tveimur lent í háska á Langjökli í vélsleðaferð. 8. janúar 2020 14:25
Störukeppni í vonskuveðri uppi á Langjökli Reyndur leiðsögumaður segir það vekja mann til umhugsunar hve tregar ferðaskrifstofur séu til að hætta við ferðir þrátt fyrir slæmt veður og aðstæður. 8. janúar 2020 15:47