Fótbolti

Sevilla fékk bara stig á heima­velli og fjörugt jafn­tefli í Valla­dolid

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leik Sevilla og Athletic Bilbao í kvöld.
Úr leik Sevilla og Athletic Bilbao í kvöld. vísir/epa

Sevilla og Athletic Bilbao gerðu 1-1 jafntefli í spænska boltanum í kvöld.

Ander Capa kom Bilbao yfir á 19. mínútu en Unai Nunes jafnaði metin með sjálfsmarki á 60. mínútu.

Diego Carlos var nærri því að skora sigurmark Sevilla þremur mínútum fyrir leikslok en skot hans framhjá. Lokatölur 1-1 jafntefli.

Sevilla er í 3. sæti deildarinnar með 35 stig en Bilbao er í sjöunda sætinu með 29 stig.







Real Valladolid og Leganes gerðu fjörugt 2-2 jafntefli. Daninn Martin Braithwaite kom Leganes yfir á fjórðu mínútu en þremur mínútum siðar jafnaði Enes Unal.

Roque Mesa kom Leganes aftur yfir á 13. mínútu en ellefu mínútum fyrir leikslok bjargaði Enes Unal stigi fyrir heimamenn í Valladolid.

Valladolid er í 14. sætinu með 21 stig en Leganes er í 19. sætinu með fjórtán stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×