Sport

Mennirnir sem ætla að koma í veg fyrir að Fjallið vinni tíunda árið í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hafþór Júlíus Björnsson hefur unnið titilinn sterkasti maður Íslands undanfarin níu ár eða allt frá árinu 2011. Hann ætlar að bæta þeim tíunda við eftir rúmar þrjár vikur.  Hér er hann fyrir framan verðlaunin sín úr keppninni.
Hafþór Júlíus Björnsson hefur unnið titilinn sterkasti maður Íslands undanfarin níu ár eða allt frá árinu 2011. Hann ætlar að bæta þeim tíunda við eftir rúmar þrjár vikur.  Hér er hann fyrir framan verðlaunin sín úr keppninni. Skjámynd/Instagram

Kraftakarlinn Hafþór Júlíus Björnsson er að undirbúa sig fyrir keppnina um sterkasti mann Íslands 2020 sem fer fram 8. og 9. ágúst næstkomandi.

Hafþór Júlíus Björnsson hefur unnið keppnina um sterkasta mann Íslands níu ár í röð og getur því unnið tíunda sigur sinn í röð í ár. Hann fer síðan á fullt í undirbúning sinn fyrir hnefaleikabardagann á móti Eddie Hall og keppir því væntanlega ekki í aflraunum á næsta ári.

Hafþór Júlíus kynnti þá kappa á Instagram-síðu sinni sem ætla að reyna að koma í veg fyrir sögulegan sigur hans.

Færsla Hafþórs er á ensku en hann á gríðarlegan fjölda erlendra aðdáenda sem sést að hann er með 3,3 milljónir fylgjendur á Instagram.

„Það verða öflugir menn sem keppa um titilinn sterkasti maður Íslands 2020. Á þessari mynd getið þið séð meirihlutann af stóru mönnunum sem ætla að keppa 8. og 9. ágúst. Ef þú ert á Íslandi á þessum dögum þá viltu ekki missa af þessari sýningu,“ skrifaði Hafþór Júlíus Björnsson á Instagram síðuna sína.

Það er spurning hvort að Fjallið hafi þarna náð að kveikja áhuga hjá einhverjum erlendum áhugamönnum um aflraunir og einhverjir þeirra ákveði að skella sér til Íslands.

Hafþór Júlíus Björnsson, Stefán Sölvi Pétursson og Ari Gunnarsson hafa allir keppt á Sterkasti manni heims en svo eru upprennandi stjörnur á borð við Eyþór Melsteð, Óskar Hafstein, Kristján Sindra Níelsson, Stefán Karel Torfason, Andre Backman og Kristján Páll Árnason sem ætla að reyna að blanda sér í baráttuna.

Keppnin um sterkasta mann Íslands í ár fer fram á þremur stöðum en þetta er í 35. skipti sem keppnin er haldin.

Laugardaginn 8. ágúst hefst keppni klukkan 13.30 á Selfossi í bændagöngu, sandpokaburði og kasta yfir rá.

Keppendur færa svo yfir í Hveragerði en klukkan 16.30 verður keppt í réttstöðulyftu sem mun endast eins oft og keppendur geta lyft. Þar með lýkur fyrri deginum.

Sunnudaginn 9. ágúst hefst dagskrá klukkan 17. 00 í Reiðhöllinni Víðidal en húsið opnar klukkan 16.00 og er selt þar inn. Keppt verður í Hönd yfir hönd, pressum og Húsafells helluburði.

Hafþór Júlíus Björnsson varð í fyrsta sinn sterkasti maður Íslands árið 2011 og endaði þá tveggja ára sigurgöngu Stefáns Sölva Péturssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×