Brighton með níu fingur á áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni Ísak Hallmundarson skrifar 4. júlí 2020 13:20 Brighton vann í dag og það þarf mikið að gerast til að þeir falli úr ensku úrvalsdeildinni í ár. getty/Richard Heathcote Brighton sigraði Norwich í ensku úrvalsdeildinni núna í hádeginu en með sigrinum eru þeir nánast öruggir um áframhaldandi veru í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var fremur bragðdaufur, lítið var um marktilraunir en heimamenn í Norwich voru þó meira með boltann. Belgíski vængmaðurinn Leandro Trossard skoraði það sem reyndist eina mark leiksins fyrir Brighton á 25. mínútu eftir sendingu frá Aaron Mooy. Í uppbótartíma fengu Norwich hættulegt færi til að jafna þegar Adam Idah skallaði boltann í stöngina. Brighton slapp með skrekkinn og lokatölur 1-0. Brighton eru eftir leikinn í 15. sæti með 36 stig, níu stigum fyrir ofan fallsæti þegar fimm umferðir eru eftir. Norwich er enn á botninum með 21 stig og er svo gott sem fallið. Enski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn