Fun­heitur Foden í stór­sigri City

Anton Ingi Leifsson skrifar
Foden og Aguero fagna marki í kvöld en Aguero fór meiddur af velli í hálfleik.
Foden og Aguero fagna marki í kvöld en Aguero fór meiddur af velli í hálfleik. vísir/getty

Hinn ungi og efnilegi Phil Foden átti frábæran leik fyrir Manchester City er liðið vann öruggan 5-0 sigur á Burnley í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem kláraðist í kvöld.

Fyrsta markið kom á 22. mínútu en Phil Foden þakkaði byrjunarliðssæti með marki. Eftir stutta hornspyrnu fékk Foden boltann fyrir utan teiginn og Nick Pope réð ekki við þrumuskot hans.

Næst var röðin komin að Riyad Mahrez. Eftir laglegan sprett tvöfaldaði hann forystuna á 42. mínútu og hann skoraði þriðja markið í uppbótartíma fyrri hálfleiks úr vítaspyrnu eftir að brotið hafi verið á Sergio Aguero.

Fjórða mark leiksins skoraði David Silva á 51. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi en Foden og Bernardo Silva áttu stóran þátt í markinu eftir laglegt spil. Foden fullkomnaði frábæran leik sinn með öðru marki sínu og fimmta marki City á 64. mínútu eftir fyrirgjöf Gabriel Jesus.

Lokatölur 5-0 og er City áfram í öðru sætinu tuttugu stigum á eftir toppliði Liverpool. Burnley er í 11. sæti deildarinnar með 39 stig og siglir lygnan sjó en Jóhann Berg Guðmundsson er á meiðslalistanum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira