Leikmenn Arsenal hópuðust að Frakkanum Neal Maupay í leikslok eftir að 2-1 tap gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Maupay skoraði sigurmarkið í uppbótartíma en braut líka á Bernd Leno, markverði Arsenal, sem borinn var af velli.
Sjá einnig: Segir Arsenal-mönnum að læra að sýna auðmýkt
Maupay fékk meðal annars létt högg í magann frá Matteo Guendouzi og ljóst að hann er ekki sá vinsælasti hjá Arsenal-mönnum eftir leikinn. Leno er sennilega alvarlega meiddur á hné eftir að hafa stokkið upp til að grípa boltann en lent illa eftir að Maupay fór utan í hann. Emiliano Martinez kom inn á í stað Leno, fimm mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks en þá var staðan markalaus.
Nicolas Pépé kom Arsenal yfir á 68. mínútu með glæsilegu marki. Lewis Dunk jafnaði metin fyrir Brighton skömmu síðar en það var komið fram á fimmtu mínútu uppbótartíma þegar Maupay skoraði sigurmarkið eftir ágæta sókn og sendingu Aaron Connolly.

Þetta var fyrsti sigur Brighton á árinu 2020 og er liðið með 32 stig í 15. sæti, fimm stigum frá fallsæti. Arsenal er í 9. sæti með 40 stig.