Sport

Glassmann hættur sem stjóri CrossFit en ræður samt öllu ennþá

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Greg Glassman í viðtali við TeamRICHEY á Youtube.
Greg Glassman í viðtali við TeamRICHEY á Youtube. Skjámynd/Youtube

Greg Glassman, stofnandi og eigandi CrossFit, hefur ákveðið að hætta afskiptum sínum af CrossFit samtökunum. Þetta gaf hann út með tilkynningu á samfélagsmiðlum CrossFit í nótt.

„Ég er hættur sem framkvæmdastjóri CrossFit og hef ákveðið að draga mig í hlé. Á laugardaginn bjó ég til gjá í CrossFit samfélaginu og óaðvitnandi særði ég marga meðlimi þess. Síðan að ég stofnaði CrossFit fyrir tuttugu árum síðan þá hefur það orðið að stærstu keðju líkamsræktarstöðva í heiminum. Allar þessar stöðvar eru að bjóða upp á glæsilega lausn í baráttunni við þrálátan sjúkdóm. Það var ánægjulegt verk að búa til CrossFit og styðja síðan við hlutdeildarfélögin og allan hópinn,“ skrifaði Greg Glassman meðal annars.

View this post on Instagram

Full release linked in bio.

A post shared by CrossFit Games (@crossfitgames) on

Greg Glassman er ekki lengur framkvæmdastjóri CrossFit en hann er ennþá eigandi og er því með öll völd ennþá.

„Þau sem þekkja mig vita vel að aðalmálið hjá mér er faraldurinn sem er þessi þráðláti sjúkdómur. Ég veit að CrossFit er lausnin við þessum faraldri og ég veit að höfuðstöðvar CrossFit og starfsmenn þeirra hafa skyldur við allar CrossFit stöðvar heims. Ég get ekki látið mína hegðun stand í vegi fyrir því samstarfi eða að markmiðin náist. Þessi verkefni eru of mikilvæg til að stofna þeim í hættu,“ skrifaði Greg Glassman.

Glassman tók sem dæmi aftur framkvæmdastjórastöðuna hjá CrossFit fyrir aðeins níu mánuðum síðan eins og blaðamaður Mourning Chalk up benti á. Það kom heldur ekki fram í þessari tilkynningu að hann hafi gefið eftir eitthvað af sínum hundrað prósent eignarhluti í CrossFit.

Það lítur því ekki út fyrir að margt hafi breyst og það þarf að koma betur í ljós hvernig CrossFit samfélagið tekur þessu útspili hans.

Samkvæmt heimildum Morning Chalk Up mun Dave Castro taka við stöðu framkvæmdastjór CrossFit en hversu mikil breyting er það eins og sjá má hér fyrir neðan.

View this post on Instagram

This is the new CEO of CrossFit responding to a question at the 2019 CrossFit Games about what his plans are to add diversity to the athlete roster. ___ Why it matters: Since Glassman s FLOYD-19 remarks, Castro has declined to denounce them or address race in the CrossFit community. Comparatively, Castro s Co-Director of Training Nicole Carroll resigned and specifically said, The pain and lived reality of the black community has been mocked. Back in 2019, when asked a point blank question, What are your plans, if any plans, to add diversity to the roster? He declined to comment. ___ Context: the question came from the crowd at the end of day 3 press conference. What are your plans, if any plans, to add diversity to the roster? ___ - @armenhammertv - #crossfit #crossfitnews #morningchalkup

A post shared by Morning Chalk Up (@morningchalkup) on


Tengdar fréttir

Katrín Tanja: Skammast mín ákaflega mikið

Íslenska CrossFit drottningin Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur ekki aðeins verið tilbúin að tjá sig um og styðja réttindabaráttu svartra heldur var hún einnig tilbúin að gagnrýna harðlega forystu CrossFit samtakanna fyrir þeirra rasísku viðbrögð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×