Tíska og hönnun

FÍT-verðlaunin 2020: Skjáir

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þessi verkefni þóttu skara fram úr á árinu að mati dómnefnda.
Þessi verkefni þóttu skara fram úr á árinu að mati dómnefnda. Samsett mynd

Alls voru 440 verk innsend til FÍT-verðlaun­anna 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri en úrslitin verða kynnt hér á Vísi næstu daga. Í flokknum Skjáir voru veitt gull- og silfurverðlaun í nokkrum undirflokkum. Þeir eru vefsvæði, gagnvirk miðlun, hreyfigrafík og að lokum opinn stafrænn flokkur. Lista yfir alla verðlaunahafa má finna hér neðar í fréttinni.

FÍT verðlaunahátíðin átti að fara fram í mars en vegna ástandsins í samfélaginu var ákveðið að tilkynna verðlaunahafana hér á Vísi og halda formlega afhendingu síðar. Næstu daga verða tilkynnt verðlaun í öllum 21 flokkunum og verður þessu skipt upp í fjórar tilkynningar. Á föstudaginn klukkan 09:00 verður svo tilkynnt hvaða gullverðlaunahafi hlýtur hin eftirsóttu aðalverðlaun FÍT. Verðlaunað verður það verk sem þykir eftirminnilegt og áhrifamikið í sínum flokki og góður fulltrúi fyrir sköpunargáfu Íslendinga í samkeppnum á alþjóðavísu.

Vefsvæði

Gull-Ólafur Arnalds

Gullverðlaun

Ólafur Arnalds

Brjálæðislega flott notkun á letri sem hæfir vel viðfangsefninu. Samræming milli síðna er góð og smáatriðin eru óaðfinnanleg.

Hönnun: Arnar Ólafsson. Ueno.

Silfur-Tían

Silfurverðlaun

Útmeða: Tían — Geðhjálp, Rauði kross íslands

Frumleg og góð uppsetning sem hæfir viðfangsefninu. Virkilega skemmtileg gagnvirkni.

Hönnun: Arnar Ólafsson. Ueno og Tjarnargatan. 

Silfur-Mæna10

Silfurverðlaun

Mæna 10 — Listaháskóli Íslands

Frumlegt og óvænt, óhrætt við að brjóta reglur, góð leturnotkun og skemmtileg uppsetning. Ferskur „wow faktor“.

Hönnun: Atli Sigursveinsson, Björn Snær Löve, Kolbeinn Jara Hamíðsson, Margrét Aðalheiður Önnu Þorgeirsdóttir, Atli Elfar Helgason, Ívar Björnsson

Gagnvirk miðlun

Gull-Baráttan um Ísland

Gullverðlaun

1238 — Baráttan um Ísland

Leikjavæðir söguna og nýtir til þess vel nýja og fjölbreytta tækni, góð lýsing á viðfangsefninu og áhugaverð miðlun á upplýsingum. Góð framsetning og fallega uppsett.

Hönnun: Högni Valur Högnason, Júlíus Valdimarsson, Kría Benediktsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, H:N Markaðssamskipti

Hreyfigrafik

Gull-Heilabrot

Gullverðlaun

Heilabrot — Sagafilm

List mætir tækni - undirstrikar efnið mjög vel, sem heldur manni við efnið. Milliskiltin brjóta þáttinn vel upp, hreyfimyndin truflar ekki, letrið undirstrikar orðin/hugtökin, og maður missir ekki samhengið heldur bætir við. Góð hönnun.

Hönnun: Emil Ásgrímsson, &&&.

Gull-Megavika

Gullverðlaun

Megavika Domino’s

Mjög vel unnið, frábært samræmi út í gegn og í takt við vörumerkið.

Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gunnhildur Karlsdóttir, Eyrún Eyjólfsdóttir, Þorvaldur Sævar Gunnarsson, Jón Páll Halldórsson, Brandenburg.

Opinn stafrænn

Gull-Snjallheimilið

Gullverðlaun

Snjallheimil Nova

Frumlegt og skemmtilegt, virkilega vel gert, áhugavert og setur ný og hærri viðmið. Meiriháttar flott.

Hönnun: Arnar Ólafsson, Jeremy Woons, Ueno.

Silfur-Þitt líf bjargar lífi

Silfurverðlaun

Þitt nafn bjargar lífi — Íslandsdeild Amnesty International

Einfalt og gott, útskýrir hugmyndina vel. Virkar fullkomlega fyrir þetta viðkvæma málefni og hreyfir við manni.

Hönnun: Elsa Nielsen, Alex Jónsson, Kontor Reykjavík.

Öll úrslit FÍT verðlaunanna 2020 verða tilkynnt hér á Vísi. Í gær var tilkynnt um flokkana Mörkun og Prent. Í dag klukkan 12 verður afhjúpað hverjir hljóta verðlaun í flokknum Auglýsingar en aðalverðlaun FÍT verða tilkynnt á morgun klukkan 09.

FÍT, FÉLAG ÍSLENSKRA TEIKNARA var stofnað 23. nóvember 1953. FÍT keppnin er haldin árlega og þar er keppt um það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi. Innsendingar í keppnina eru einnig opnar fyrir öðrum en FÍT meðlimum, enda er markmið keppninnar að endurspegla það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi en ekki eingöngu það besta meðal félagsmanna.


Tengdar fréttir

FÍT-verðlaunin 2020: Prent

Næstu daga verður tilkynnt hvaða verk hljóta FÍT-verðlaunin árið 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri. Í flokknum Mörkun eru veitt gull- og silfurverðlaun í undirflokkunum stakar myndlýsingar, myndlýsingarraðir, myndlýsingar fyrir auglýsingar og herferðir, veggspjöld, bókakápur, bókahönnun og nemendaflokkur. 

FÍT-verðlaunin 2020: Mörkun

Næstu þrjá daga verður tilkynnt hvaða verk hljóta FÍT-verðlaunin árið 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri. Í flokknum Mörkun eru veitt gull- og silfurverðlaun í undirflokkunum firmamerki, mörkun fyrirtækja, menningar- og viðburðarmörkun, geisladiskar og plötur og í flokkinum umbúðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×