Viðskipti innlent

Telja dómara sem dæmdi á skjön við alla hina tengjast bresku aug­lýsinga­stofunni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Valgeir Magnússon stjórnarformaður Pipar/TBWA og Guðmundur Pálsson, framkvæmdastjóri Pipar/TBWA.
Valgeir Magnússon stjórnarformaður Pipar/TBWA og Guðmundur Pálsson, framkvæmdastjóri Pipar/TBWA. Samsett/Pipar

Stjórnarformaður auglýsingastofunnar Pipars/TBWA telur að einn dómara í nefndinni sem valdi tilboð bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi í markaðsátakinu „Ísland – saman í sókn“ hafi möguleg tengsl við hina síðarnefndu stofu. Ekkert hefur fengist staðfest í þeim efnum en Vísir hefur sent Ríkiskaupum og Íslandsstofu, sem fara fyrir markaðsátakinu, fyrirspurn vegna málsins.

Ákveðið var að ráðast í átakið til landkynningar á Íslandi sem ferðamannastaðar á erlendum mörkuðum í kjölfar faraldurs kórónuveiru. Greint var frá því í morgun að Pipar/TBWA hefði kært Ríkiskaup vegna þeirrar ákvörðunar að velja M&C Saatchi, í samstarfi við íslensku auglýsingastofuna Peel, til að vinna átakið. Alls mun ríkið verja einum og hálfum milljarði króna í verkefnið,  þar af 300 milljónum í auglýsingaherferðina sem útboðið sneri að.

Tillaga M&C Saatchi hlaut 87,17 stig af hundrað mögulegum. Pipar/TBWA kom næst í röðinni með 86,35 stig. Sáralitlu munaði því á einkunnum stofanna tveggja og lýstu forsvarsmenn Pipars yfir vonbrigðum með það strax í kjölfarið að þetta stóra verkefni skyldi falla í skaut erlendrar stofu.

Íslensk auglýsingastofa hefði aldrei komið til greina

Valgeir Magnússon stjórnarformaður Pipars/TBWA lagði áherslu á það í viðtali í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun að ekki hafi verið gætt jafnræðis í ýmsum þáttum útboðsins, til að mynda er varðar virðisaukaskatt og þá staðreynd að M&C Saatchi sæti rannsókn breska fjármálaeftirlitsins eftir að stofan viðurkenndi bókhaldsmisferli í lok síðasta árs.

Valgeir hélt því fram að íslenskt fyrirtæki með sambærilega sögu hefði aldrei hlotið brautargengi í útboðinu.

„Þar sem þau [M&C Saatchi] hafa brotið mjög gróflega af sér með fjársvikum í sínu heimalandi og bókhaldsbroti og alls konar dóti, og markaðsmisnotkun. Enginn í dómnefndinni hafði hugmynd um slíkt þegar þau voru að dæma í þessu máli og við fullyrðum að íslensk auglýsingastofa hefði aldrei átt möguleika í þessu útboði, ekki nokkurn séns, eftir svona stórfelld brot og verið í fjölmiðlum dögum saman vegna slíkra brota,“ sagði Valgeir.

„Þarna er líka mismunur á milli þjóðernis þar sem þau njóta þess að engin umfjöllun um þetta mál hefur verið á Íslandi og rannsóknarskylda ríkiskaupa hefði átt að leiða í ljós að þau væru í þessari rannsókn. Og bara samkvæmt lögum um opinber innkaup hefði átt að útiloka þetta fyrirtæki frá þátttöku í útboðinu. Þarna eru hlutirnir ekki í lagi.“

Fara fram á að dómarinn verði rannsakaður

Fleiri hlutir við útboðið eru í ólagi að mati Valgeirs. Þrettán manna dómnefnd skipuð fulltrúum ráðherra ferðamála, Samtaka ferðaþjónustunnar, Reykjavíkurborgar, markaðsstofa landshlutanna og Íslandsstofu, fór yfir tilboðin og lagði mat á þau. Ríkiskaup fór með framkvæmd útboðsins. Valgeir setti spurningarmerki við hæfi eins dómaranna.

„Og þá er til dæmis að einn dómari af þrettán, hann dæmir algjörlega á skjön við alla dómarana í útboðinu. […] Frá tólf dómurum fáum við toppeinkunn en við fáum þrjá í einkunn í öllum liðum frá einum dómaranum,“ sagði Valgeir.

„Við teljum okkur vera með nokkuð skýra vísbendingu um hver þessi aðili er en við getum ekki sagt það með fullri vissu. Við erum að fara fram á að það sé rannsakað. Þessi eini dómari hann gerir það að verkum að við töpum útboðinu. […] Hugsanlega hefur þessi dómari hagsmuni af því að íslenskt fyrirtæki fái ekki þetta verkefni.“

Inntur eftir því hvort umræddur dómari tengdist e.t.v. M&C Saatchi sagði Valgeir að svo gæti verið, þó að hann vildi ekkert fullyrða í þeim efnum.

„Ef þetta er sá sem við höldum að þetta sé þá eru til tengsl, já. En svo skiptir það máli fyrir okkur, að við verðum að vita að það sé nákvæmlega sá sem við teljum að þetta sé áður en við förum að koma með slíkt fram.“

Nettó núll krónur fyrir ríkið

Guðmundur Pálsson, framkvæmdastjóri Pipar/TBWA, segir í yfirlýsingu að ef málið falli Pipar í vil geti fyrirtækið tekið fjörutíu starfsmenn af hlutabótaleiðinni svokölluðu.

„[…] og það ásamt skattgreiðslum sem yrði af þessu verkefni á Íslandi mun að öllum líkindum gera það að verkum að verkefnið kostar nettó 0 krónur fyrir ríkið ef við vinnum verkið. En ef það fer til Bretlands þá kostar það 300 milljónir.“

Þá dregur Guðmundur hæfi umrædds dómara einnig í efa.

„Einn dómari dæmir á skjön við alla dómnefndina og gefur okkur 3 í einkunn í öllum liðum á sama tíma og allir aðrir dómarar gefa okkur topp einkunn. Bara þessi dómari einn og sér veldur því að verkefnið endar í Bretlandi en ekki á Íslandi,“ segir Guðmundur.

„Það er undarlegt að við skulum vera að senda verkefni sem þetta til Bretlands á sama tíma og breska ríkið hefur ákveðið að sniðganga EES í öllum útboðum þetta árið. Slíkt hlýtur að eiga að virka í tvær áttir.“


Tengdar fréttir

300 milljónirnar verði ekki algjörlega sendar úr landi

Þrjú hundruð milljón krónurnar sem Íslandsstofa hyggst verja í nýja auglýsingaherferð, sem féll í skaut bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchio og hinnar íslensku Peel, hverfa ekki með öllu úr hagkerfinu að sögn fulltrúa auglýsingastofanna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×