668 sjóliðar á frönsku herskipi smitaðir Atli Ísleifsson skrifar 16. apríl 2020 11:39 Franska flugmóðurskipið Charles de Gaulle. AP
Þriðjungur sjóliða á franska flugvélamóðurskipinu Charles de Gaulle, 668 af nærri tvö þúsund, hafa greinst með kórónuveirusmit. Skipinu var snúið fyrr til hafnar í Toulon á suðurströnd landsins, eftir að hafa verið við æfingar á Atlantshafi. Í yfirlýsingu frá franska hersnum segir að tuttugu sjóliðanna séu nú á sjúkrahúsi og þar af er einn þeirra á gjörgæslu. Mynd úr skipinu.AP Líklegt er talið að fjöldi smita meðal sjóliða komi til með að hækka þar sem enn á eftir að fá niðurstöðu úr nærri 30 prósent þeirra sýna sem tekin hafa verið. Í frétt BBC segir að franski sjóherinn rannsaki nú hvers vegna svo margir sjóliðanna hafi smitast af veirunni. Allir um borð í Charles de Gaulle hafa nú verið settir í sóttkví. Alls hafa um 148 þúsund smit greinst í Frakklandi og eru dauðsföll sem rakin eru til Covid-19 nú 17.167. Talsmaður franskra heilbrigðisyfirvalda sagði í gær að 6.457 manns væru nú á gjörgæslu vegna veirunnar, 273 færri en daginn áður. Strangar reglur eru nú í gildi í Frakklandi vegna veirunnar, en Emmanuel Macron hefur tilkynnt að útgöngubann hafi verið framlengt til 11. maí.
Frakkland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira