Tugir barna borin af staðgöngumæðrum strönduð í Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 15. maí 2020 10:39 Foreldrarnir eru að mestu frá Bandaríkjunum og Evrópu en yfirvöld Úkraínu hafa lokað landamærum ríkisins, eins og gert hefur verið víða vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Vísir/Getty
Rúmlega fimmtíu ungbörn, sem fædd voru af staðgöngumæðrum, eru í raun strönduð í Úkraínu en foreldrar þeirra komast ekki til landsins að sækja þau. Foreldrarnir eru að mestu frá Bandaríkjunum og Evrópu en yfirvöld Úkraínu hafa lokað landamærum ríkisins, eins og gert hefur verið víða vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Öllum börnunum 51 hefur verið komið fyrir á sjúkrahóteli í jaðri Kænugarðs, samkvæmt frétt Sky News, og geta foreldrar þeirra eingöngu hitt þau í gegnum internetið. Útlit er fyrir að börnin verði þarna um langt skeið. Bæði verður foreldrunum ekki hleypt inn í landið án formlegrar beiðni frá yfirvöldum heimaríkja þeirra. Þar að auki yrði alfarið óljóst hvernig þau kæmust þangað þar sem flug hafa að mestu verið felld niður. Foreldrum sextán bara hefur tekist að sækja börn sín til Úkraínu. Eigendur hótelsins, fyrirtækið BioTexCom hafa átt í viðræðum við yfirvöld Úkraínu um börnin en það hefur ekki skilað þeim árangri sem þeir vonuðust eftir. Með því að ganga með barn annarra getur kona fengið allt að tvær og hálfa milljón króna fyrir. Fregnir af börnunum hafa leitt til umræðu um staðgöngumæður í Úkraínu. Fyrirkomulagið hefur verið gagnrýnt af mannréttindasamtökum sem segja að börn séu auglýst og komið fram við þau sem vörur. Hér að neðan má sjá frétt BBC um börnin.
Úkraína Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira