Ríkisendurskoðandi segir fjölskyldutengsl ekki hafa skipt máli Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. september 2012 15:23
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi vísar því á bug að fjölskyldutengsl hafi orðið til þess að rannsókn Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisins á Oracle kerfinu hafi dregist. „Í umfjöllun fjölmiðla að undanförnu hefur verið gefið í skyn að fjölskyldutengsl mín við annars vegar fyrrverandi starfsmann Skýrr og hins vegar núverandi starfsmann fjármálaráðuneytisins hafi eitthvað með það að gera að dregist hefur að ljúka úttekt Ríkisendurskoðunar varðandi fjárhagsupplýsingakerfi ríkisins. Ég vísa þessum dylgjum algerlega á bug," segir Sveinn í yfirlýsingu sem birt er á vef Ríkisendurskoðunar. Sveinn segir rétt að bróðir sinn, Þórhallur Arason, sé yfirmaður þeirrar skrifstofu fjármálaráðuneytisins sem annast umsýslu eigna ríkisins, þar á meðal hugbúnaðarkerfa í eigu þess. Þegar tilboð í nýtt fjárhagsupplýsingakerfi fyrir ríkið hafi legið fyrir árið 2001 og ljóst var að Skýrr væri meðal bjóðenda, hafi Þórhallur hins vegar ákveðið að víkja sæti í nefnd þeirri sem sá um að meta tilboðin þar sem annar bróðir þeirra, Atli Arason, hafi á þessum tíma verið yfirmaður sölu- og markaðssviðs Skýrr. „Þórhallur kom með öðrum orðum ekki að ákvörðun um kaup á kerfinu. Eftir að gengið var frá kaupsamningi annaðist sérstakt svið innan Skýrr innleiðingu á kerfinu. Atli kom ekki að henni. Hann starfaði hjá fyrirtækinu til ársins 2006 en rauf þá öll tengsl við það. Ég var skipaður í embætti ríkisendurskoðanda sumarið 2008," segir Sveinn Arason.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira