Van der Bellen sver embættiseið í dag atli ísleifsson skrifar 26. janúar 2017 09:01
Alexander van der Bellen, fyrrverandi leiðtogi austurrískra Græningja, sver í dag embættiseið sem forseti Austurríkis. Hann hafði betur gegn hægri popúlistanum Norbert Hofer í kosningunum sem fram fóru á síðasta ári. Van der Bellen mun flytja innsetningarræðu sína eftir að hafa svarið embættiseiðinn. Að því loknu mun hann ganga að Hofburg-höllinni í Vínarborg til fundar við ríkisstjórn landsins. Van der Bellen hlaut tæplega 54 prósent atkvæða í síðari umferð kosninganna sem fór fram 4. desember. Hofer hlaut um 46 prósent atkvæða. Fyrri umferð forsetakosninganna fóru fram í Austurríki í apríl síðastliðinn, en sú síðari, sem fór fram í maí, var úrskurðuð ógild af hæstarétti landsins þar sem talið var að kosningalög hefðu verið brotin. Þá hafði Van der Bellen nauman sigur. Embætti forseta Austurríkis er að stærstum hluta táknrænt og hefur sá sem því gegnir í raun svipað hlutverk og forseti Íslands. Kosningarnar í Austurríki voru af mörgum stjórnmálaskýrendum taldar vera prófsteinn á fylgi þjóðernissinna í Evrópu enda byggði Hofer kosningabaráttu sína mikið á orðræðu sem snerist um að færa venjulegum Austurríkismönnum landið þeirra aftur og þar með úr greipum innflytjenda sem búa í landinu. Þá hafði hann einnig viðrað hugmyndir þess efnis að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi veru Austurríkis í Evrópusambandinu.
Tengdar fréttir Þjóðernissinninn Hofer tapaði í forsetakosningunum í Austurríki Norbert Hofer, leiðtogi Frelsisflokksins í Austurríki sem er yst á hægri væng stjórnmálanna þar í landi, hefur játað sig sigraðan í austurrísku forsetakosningunum sem fram fóru í dag. 4. desember 2016 17:19 Hofer gæti þrýst á þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Austurríkis í ESB Austurríkismenn kjósa milli Norbert Hofer, frambjóðanda Frelsisflokksins, og hins óháða Alexander Van der Bellen þann 4. desember. 24. nóvember 2016 08:30 Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira
Þjóðernissinninn Hofer tapaði í forsetakosningunum í Austurríki Norbert Hofer, leiðtogi Frelsisflokksins í Austurríki sem er yst á hægri væng stjórnmálanna þar í landi, hefur játað sig sigraðan í austurrísku forsetakosningunum sem fram fóru í dag. 4. desember 2016 17:19
Hofer gæti þrýst á þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Austurríkis í ESB Austurríkismenn kjósa milli Norbert Hofer, frambjóðanda Frelsisflokksins, og hins óháða Alexander Van der Bellen þann 4. desember. 24. nóvember 2016 08:30