Eiður skoraði í stórsigri Börsunga Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. janúar 2008 20:30 Eiður Smári fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta mark Barcelona í 4-0 sigri liðsins á Real Murcia í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Samuel Eto'o skoraði tvö mörk í kvöld og Bojan Krkic eitt. Markið skoraði Eiður á 26. mínútu. Gianluca Zambrotta fékk boltann á hægri kantinum, gaf fyrir markið þar sem Eiður kom aðvífandi og stýrði boltanum laglega í markið. Eiður átti mjög góðan fyrri hálfleik og var mikið í boltanum. Hann lék á miðjunni ásamt Rafael Marquez og Xavi en í sókninni voru þeir Bojan Krkic, Thierry Henry og Samuel Eto'o. Bojan skoraði svo annað mark leiksins á 52. mínútu eftir undirbúning Henry. Frank Rijkaard skipti svo Eiði út af á 66. mínútu en Andrés Iniesta kom inn á í hans stað. Henry lagði svo upp annað mark, í þetta sinn fyrir Samuel Eto'o á 77. mínútu. Henry fékk þá langa sendingu inn fyrir vörn Murcia frá Sylvinho og lagði boltann einfaldlega á Eto'o sem átti ekki í vandræðum með að skora. Zambrotta fékk svo algjört dauðafæri á 85. mínútu er boltinn barst á hann frá Eto'o en skot hans hafnaði í stönginni. Eto'o var svo sjálfur að verki þegar hann skoraði fjórða mark Börsunga tveimur mínútum síðar. Varamaðurinn Giovanni dos Santos vann einvígi við varnarmann Murcia og lagði upp markið fyrir Eto'o. Þetta var síðasti leikur hans fyrir Afríkukeppnina en Eto'o er leikmaður landsliðs Kamerún.
Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Sjá meira