Oprah til liðs við 60 Minutes Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 1. febrúar 2017 18:24
Sjónvarpskonan ástsæla Oprah Winfrey mun snúa aftur á sjónvarpsskjái Íslendinga á næstunni, en hún mun bætast í teymið á bakvið fréttaskýringaþættina 60 Minutes í haust. Oprah stýrði spjallþætti sínum, The Oprah Winfrey Show, í 25 ár og var vinsælasti spjallþáttur í sögu bandarísks sjónvarps. Hún stofnaði jafnframt sitt eigið framleiðslufyrirtæki, Harpo productions og framleiðir fyrirtækið vinsæla þætti á borð við Dr.Phil, The Dr. Oz Show og Rachael Ray.Í tilkynningu sem send var út í dag sagði Oprah að hún hafi verið mikill aðdáandi 60 minutes frá því hún steig sín fyrstu skref í sjónvarpi. „Ég er stolt og spennt að bætast í teymi þessa sögufræga þáttar sem er að mínu mati leiðandi í fréttaskýringum. Á tímum þegar fólk er svo klofið er ætlun mín að varpa ljósi á hvað það er sem aðskilur okkur og reyna að koma á samtali á milli fólks af mismunandi uppruna,“ sagði Oprah. „Það er einungis ein Oprah Winfrey,“ sagði Jeff Fager, aðalframleiðandi þáttanna. „Hún hefur verið leiðandi í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur og er ferill hennar magnaður. Hún hefur tekið þúsundir viðtala við einstaklinga úr öllum kimum samfélagsins. Hún einstök og hæfileikarík kona og heilindi hennar gefa henni sérstöðu og gera það að verkum að hún passar fullkomlega í 60 Minutes. Ég er hæstánægður með að hún komi með sína óviðjafnanlegu og kraftmiklu rödd í þáttinn okkar.“ Þættirnir 60 Minutes hófu göngu sína árið 1968 og njóta enn í dag mikilla vinsælda og eru vinsælustu fréttaskýringarþættir Bandaríkjanna. Þættirnir eru á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudagskvöldum.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri alvarlegri samtöl og oftar haft samband við Neyðarlínuna Innlent Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Erlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Sjá meira