Enski boltinn

Portsmouth ætlar að byggja nýjan leikvang

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Portsmouth hefur verið á Fratton Park í 110 ár.
Portsmouth hefur verið á Fratton Park í 110 ár. Nordic Photos / Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth ætlar á næsta ári hefja framkvæmdir á nýjum leikvangi sem mun taka 36 þúsund manns í sæti.

Leikvangurinn verður hannaður af sama fyrirtæki og sá um hönnun Ólympíuleikvangsins í Peking. Hann mun horfa yfir hafnarsvæðið í bænum og verður að sögn framkvæmdarstjórans Peter Storrie hinn glæsilegasti.

„Félagið mun skipa stóran sess í endursköpun borgarinnar og stuðningsmenn okkar munu njóta bestu mögulegu aðstöðu og frábæru útsýni."

Portsmouth hefur verið á Fratton Park síðan 1898 en völlurinn tekur einungis rúmlega 20 þúsund manns í sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×