Lífið

Verður ekki að eignast barn

Jennifer Aniston er alveg sallaróleg yfir barneignum.
Jennifer Aniston er alveg sallaróleg yfir barneignum.
Jennifer Aniston hefur enn og aftur tjáð sig um viðhorf sitt til barna. Hin 43 ára leikkonan er barnlaus og hin svokallaða líffræðilega klukka hennar því farin að tifa allsvakalega.

„Ég held kannski að almenningur vilji að ég eignist barn núna," sagði hún í viðtali við tímaritið GQ. „Ég er samt alveg róleg. Ef þetta gerist, þá gerist það. Ég hugsa ekki þannig að ég verði að eignast barn."

Orðrómur hefur verið uppi um að hún sé ófrísk eftir kærastann sinn Justin Theroux. Því vísar hún á bug. „Núna vil ég koma þessum hlutum á hreint varðandi barneignir. Ég er ekki að fara að eignast þríbura, ekki tvíbura og heldur ekki eitt barn. Ég er ekki ófrísk."

Aniston er á forsíðu tímaritsins ásamt Paul Rudd en þau leika saman í rómantísku gamanmyndinni Wanderlust. Hún er væntanleg á hvíta tjaldið í Bandaríkjunum í næstu viku.

Aniston sótti skilnað við Brad Pitt árið 2005. Hann byrjaði þá með Angelinu Jolie og saman eiga þau sex börn, þar af þrjú ættleidd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×