Fótbolti

Simeone: Ronaldo er númer eitt

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ronaldo hefur gjarnan leikið Simeone grátt.
Ronaldo hefur gjarnan leikið Simeone grátt. vísir/getty
Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, reiknar ekki með neinu öðru en að Cristiano Ronaldo muni reynast sínum mönnum erfiður þegar Atletico heimsækir Juventus í Meistaradeild Evrópu.

Það verður að teljast eðlilegt því Ronaldo hefur skorað 22 mörk gegn Atletico Madrid á ferli sínum hjá Real Madrid og Juventus. 

„Ronaldo er meistari. Hann hefur alltaf látið Atletico þjást. Hann er númer eitt. Algjörlega einstakur,“ segir Simeone.

„Hann hefur svo marga eiginleika og svo margar leiðir til að gera gæfumuninn,“ segir Simeone jafnframt.

Leikur Juventus og Atletico Madrid hefst klukkan 20:00 og verður fylgst með gangi mála í Meistaradeildarmessunni á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×