Ótrúleg endurkoma Levante gegn Börsungum

Antoine Griezmann og félagar fengu skell gegn Levante
Antoine Griezmann og félagar fengu skell gegn Levante vísir/getty
Barcelona varð af mikilvægum stigum og gæti misst toppsæti La Liga deildarinnar þegar liðið tapaði fyrir Levante.

Eftir að hafa pressað að marki Levante uppskar Barcelona vítaspyrnu á 36. mínútu. Lionel Messi fór á punktinn og skoraði af öryggi. Markið skildi liðin að í hálfleik.

Heimamenn byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og á 60. mínútu jafnaði Jose Campana metin. Þremur mínútum seinna voru heimamenn komnir yfir.

Á 68. mínútu skoraði Nemanja Radoja þriðja mark Levante og leikurinn búinn að snúast heimamönnum í vil.

Lionel Messi virtist hafa komið Börsungum aftur inn í leikinn með marki á 74. minútu en markið var dæmt ógilt af myndbandsdómurum, Antoine Griezmann var dæmdur rangstæður í aðdraganda marksins.

Fleiri mörk urðu ekki skoruð í leiknum og Levante vann ótrúlegan 3-1 sigur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira