Handbolti

Teitur markahæstur hjá Kristianstad

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Teitur skoraði fimm mörk.
Teitur skoraði fimm mörk. vísir/getty
Teitur Örn Einarsson var markahæstur í liði Kristianstad sem tapaði fyrir Chekhovskie medvedi, 37-26, í Meistaradeild Evrópu í dag.

Teitur skoraði fimm mörk úr níu skotum. Ólafur Guðmundsson náði sér ekki á strik og klúðraði öllum þremur skotunum sínum.

Chekhovskie medvedi var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 20-16, og var svo mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik.

Kristianstad er í sjötta og neðsta sæti D-riðils Meistaradeildarinnar.

Sænska liðið hefur aðeins unnið einn af fyrstu sex leikjum sínum í keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×