Handbolti

Valur rétti af skelfi­lega byrjun

Andri Broddason skrifar
Valur er komið aftur á strik eftir slæma fyrstu umferð.
Valur er komið aftur á strik eftir slæma fyrstu umferð. Diego/Vísir

Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Vals í handbolta kvenna fengu skell í fyrstu umferð Olís deildarinnar þegar liðið tapaði fyrir Selfossi. Liðið tók á móti ÍBV í annarri umferð deildarinnar og liðið náði í kærkominn sigur.

Valur byrjaði leikinn sterkt og náði fljótt fjögurra marka forskoti á gestina í ÍBV. Heimakonur náðu að halda þessu forskoti þægilega alveg fram að hálfleik.

Í seinni hálfleik hægði lið Vals ekkert á sér og gekk erfiðlega fyrir ÍBV að minnka forystu Vals. Alltaf þegar ÍBV náði að skora þá svaraði Valur skömmu síðar.

Þegar byrjaði að líða á leikinn komst Valur í sjö marka forystu og við það róaði Valur leikinn. Of lítið var eftir fyrir ÍBV að koma til baka og endaði leikurinn á öruggum 31-27 sigri Vals á Hlíðarenda. 

Guðrún Hekla Traustadóttir var markahæst í liði Vals með átta mörk og Auður Ester Gestsdóttir var ekki langt á eftir henni með sex mörk. Hafdís Renötudóttir stóð sig vel í markinu en hún varði ellefu skot og var með 29 prósent vörslu.

Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði ÍBV með sex mörk og Andrea Jacobsen var næstmarkahæst með fimm. 

Valur er því komið með sín fyrstu stig í deildinni eftir að hafa tapað óvænt í fyrstu umferð. ÍBV er með tvö stig líkt og Valur þegar tvær umferðir eru búnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×