Feðgin frelsissviptu konu í viku og brutu á kynferðislega Eiður Þór Árnason skrifar 9. nóvember 2019 12:42 Konan fannst nálægt Edwards flugherstöðinni í suðurhluta Kaliforníu. vÍSIR/GETTY
Faðir og dóttir sem voru handtekin fyrr í þessari viku í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum eru grunuð um að hafa rænt konu í Las Vegas, brotið á henni kynferðislega og skilið hana eftir í lífshættu. Stanley Alfred Lawton og Shaniya Nicole Poche-Lawton eru sökuð um mannrán, tilraun til manndráps og nauðgun, að sögn saksóknara í Los Angeles-sýslu. Þau eru sömuleiðis ákærð fyrir að hafa rænt þrjá hraðbanka. Herlögregla fann fórnarlambið nálægt Edwards flugherstöðinni í suðurhluta Kaliforníu síðasta miðvikudag og var hún færð á sjúkrahús til aðhlynningar. Hún hefur nú verið útskrifuð af sjúkrahúsi og er snúin aftur til Las Vegas. Talið er að feðginin hafi ógnað konunni með skotvopni og rænt henni í norðurhluta Las Vegas í kringum 30. október síðastliðinn og haldið henni gegn vilja sínum í viku á heimili í Palmdale í Kaliforníu. Konan er sögð hafa þekkt mannræningjana og leiddu þær upplýsingar til handtöku feðginanna. Ekkert er sagt benda til þess þau hafi verið í hefndarhug eða krafist lausnargjalds, samkvæmt upplýsingum frá Eduardo Hernandez, yfirvarðstjóra hjá lögreglunni í Los Angeles-sýslu. Hernandez sagði það ekki heldur liggja fyrir hvers vegna Lawton-fenginin slepptu konunni. Hann sagði að um grimmilegt mál væri að ræða og að fórnarlambið væri heppið að hafa fundist á lífi.
Bandaríkin Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira