Messi allt í öllu er Börsungar fóru á toppinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lionel Messi
Lionel Messi vísir/getty
Barcelona fór létt með að taka toppsætið í La Liga, Börsungar unnu fjögurra marka sigur á Real Valladolid.

Eftir aðeins tvær mínútur komust heimamenn yfir á Nou Camp, Clement Lenglet skoraði eftir að Valladolid gekk illa að hreinsa boltann úr teignum.

Kiko jafnaði metin fyrir gestina á 15. mínútu en það átti ekki eftir að endast lengi. Arturo Vidal kom Barcelona fatur yfir á 29. mínútu eftir sendingu Lionel Messi.

Messi var svo sjálfur á ferðinni fimm mínútum seinna þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu.

Í seinni hálfleik bætti Messi öðru marki sínu við, hann fékk sendingu frá Ivan Rakitic inn í vítateiginn og hamraði boltann í netið.

Tveimur mínútum seinna lagði Messi svo upp fimmta mark Barcelona fyrir Luis Suarez. Lokatölur urðu 5-1 fyrir Barcelona sem fer upp fyrir Granada og Atletico Madrid og í toppsæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira