Fótbolti

Byrjunarliðið gegn Moldóvu: Kolbeinn og Jón Daði frammi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kolbeinn verður með Jóni Daða í fremstu víglínu íslenska liðsins.
Kolbeinn verður með Jóni Daða í fremstu víglínu íslenska liðsins. vísir/bára
Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Moldóvu í undankeppni EM 2020 í kvöld.

Hamrén stillir upp tveimur framherjum, þeim Kolbeini Sigþórssyni og Jóni Daða Böðvarssyni. Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson eru saman á miðjunni og Arnór Ingvi Traustason og Birkir Bjarnason á köntunum.

Hannes Þór Halldórsson er á sínum stað í markinu og Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson í miðvarðastöðunum. Hjörtur Hermannsson er hægri bakvörður og Ari Freyr Skúlason vinstri bakvörður.

Leikur Íslands og Tyrklands hefst klukkan 16:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.

Byrjunarliðið má sjá hér fyrir neðan.



Byrjunarlið Íslands:

Markvörður: Hannes Þór Halldórsson

Hægri bakvörður: Hjörtur Hermannsson

Miðverðir: Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson

Vinstri bakvörður: Ari Freyr Skúlason

Hægri kantmaður: Arnór Ingvi Traustason

Miðjumenn: Aron Einar Gunnarsson (fyrirliði) og Gylfi Þór Sigurðsson

Vinstri kantmaður: Birkir Bjarnason

Framherjar: Kolbeinn Sigþórsson og Jón Daði Böðvarsson


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×