Íslensku strákarnir juku aftur forskotið á lið Lars Lagerbäck Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2019 11:00 Kveðjustund hjá Lars Lagerbäck á EM 2016. Heimir Hallgrímsson tók þá einn við liðinu. vísir/vilhelm
Ísland er í 36. sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem var gefinn út í morgun. Íslenska liðið lækkar um eitt sæti á FIFA-listanum að þessu sinni en Norðmenn fara niður um þrjú sæti og eru nú í 50. sæti. Íslensku strákarnir juku þar með forskot sitt á landslið Lars Lagerbäck á öðrum listanum í röð en nú munar fjórtán sætum á landsliðum þjóðanna. Það munaði tólf sætum á júnílistanum og tíu sætum í apríl. Íslenska landsliðið var heilum 39 sætum á undan Noregi á listanum í júlí í fyrra en munurinn fór niður í 9 sæti á síðustu tveimur listum ársins 2018. Lars Lagerbäck var á góðri leið með að ná íslenska landsliðinu. Gott gengi íslenska landsliðsins á undanförnu hefur séð til þess að munurinn er aftur að aukast.NEW #FIFARANKING Continental champs reap their rewards this month@CBF_Futebol climb to 2⃣@LesVerts make big leap@miseleccionmxEN jump up table More — FIFA.com (@FIFAcom) July 25, 2019 Belgía er áfram í efsta sæti FIFA-listans en Brasilíumenn eru komnir upp í annað sætið. Kólumbía (5. sæti) og Argentína (10. sæti) komust bæði inn á topp tíu en í staðinn duttu Sviss (11. sæti) og Danmörk (13. sæti) niður fyrir tíunda sætið. Afríkumeistarar Alsír náði hæsta stökkinu en þeir fara upp um 28 sæti og eru nú í 40. sæti. Þeir eru samt enn fjórum sætum á eftir Íslandi.Forskot Íslands á norska landsliðið á FIFA-listanum Júlí 2019: +14 (36. Ísland - 50. Noregur) Júní 2019: +12 (35. Ísland - 47. Noregur) Apríl 2019: +10 (40. Ísland - 50. Noregur) Febrúar 2019: +10 (38. Ísland - 48. Noregur) Desember 2018: +9 (37. Ísland - 46. Noregur) Nóvember 2018: +9 (37. Ísland - 46. Noregur) Október 2018: +12 (36. Ísland - 48. Noregur) September 2018: +16 (36. Ísland - 42. Noregur) Ágúst 2018: +21 (32. Ísland - 53. Noregur) Júlí 2018: +39 (22. Ísland - 61. Noregur) Júní 2018: +31 (22. Ísland - 53. Noregur)
Fótbolti Mest lesið Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Íslandsmetin falla í bunkum á Íslandsmótinu í sundi Sport Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Körfubolti Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Fótbolti „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Norris á ráspól en Verstappen í vandræðum Formúla 1 Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Handbolti „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Sanngjarn heimasigur Enski boltinn Fleiri fréttir Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Inter missti niður tveggja marka forskot Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Sædís og Arna fengu silfrið en Diljá meiddist Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Rekinn aðeins sex mánuðum eftir að hann yfirgaf Liverpool Mamma og pabbi í stúkunni þegar Emelía skoraði þrennuna í bikarnum Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Sjá meira