Erlent

Ludvig­sen dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir kyn­ferðis­brot gegn ungum hælis­leit­endum

Sylvía Hall skrifar
Ludvigsen er fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi fylkisstjóri Troms. Hann á að hafa framið brotin þegar hann gegndi síðarnefnda embættinu árin 2006-2014.
Ludvigsen er fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi fylkisstjóri Troms. Hann á að hafa framið brotin þegar hann gegndi síðarnefnda embættinu árin 2006-2014. EPA/STIAN LYSBERG SOLUM
Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Noregs, Svein Ludvigsen, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungum hælisleitendum. Þá var hann einnig dæmdur til þess að greiða 743 þúsund norskar krónur til fórnarlambanna, sem samsvarar tæplega ellefu milljónum íslenskra króna. NRK greinir frá.

Ludvigsen er sagður hafa misnotað stöðu sína sem embættismaður til þess að þvinga mennina til að hafa við sig samfarir gegn því að veita þeim hæli. Þá hafi hann nýtt sér þroskaskerðingu eins þeirra til þess að brjóta á honum kynferðislega.

Sjá einnig: Fyrrverandi ráðherra ákærður fyrir kynferðisbrot gegn hælisleitendum

Allir mennirnir komu til Noregs sem ungir hælisleitendur. Þeir þekktust ekkert fyrir en framburðir þeirra báru allir þess merki að Ludvigsen hafi gróflega misnotað stöðu sína í þeirra málum.

Ludvigsen neitaði sök í málinu en í vitnisburði eins fórnarlambsins kom fram að Ludvigsen hafi hjálpað honum að verða sér út um vinnu og greitt kostnaðinn við að taka bílpróf. Sagði fórnarlambið annarlegar hvatir hafa búið að baki góðmennsku ráðherrans og hann hafi einungis gert þetta til þess að sýna fram á völd sín.

Eitt af sönnunargögnum í málinu. Svein Ludvigsen sést hér á gangi í grennd við hótel ásamt einum af mönnunum sem hann er sakaður um að hafa brotið gegn.Mynd/Lögreglan í Noregi

Leið eins og þræl 

Alvarlegasta brotið beindist að hælisleitanda sem var aðeins sautján ára gamall þegar hann kynntist Ludvigsen. Hann hafi hitt hann í móttöku fyrir hælisleitendur sem ráðherran bauð til árið 2011.

Í kjölfarið hafi hann boðið drengnum með í sumarbústað þar sem misnotkunin hófst.Í bústaðarferðinni tók Ludvigsen nektarmynd af þeim saman sem varð til þess að rannsóknin hófst. Í átta yfirheyrslum hjá lögreglu neitaði Ludvigsen að hafa haft kynmök með drengnum þrátt fyrir myndina.

Hælisleitandinn ungi, sem er í dag 25 ára gamall, sagði við réttarhöldin að honum hafi liðið eins og þræl. Ludvigsen hafi talið honum trú um að hann gæti útvegað honum dvalarleyfi og seinna meir ríkisborgararétti og því hafi hann ekki þorað að segja frá sambandi þeirra af ótta við afleiðingarnar.

Í máli annars fórnarlambsins, sem glímir við þroskaskerðingu, bauð ráðherrann honum upp á hótelherbergi þar sem hann hafði við hann kynmök. Ludvigsen sagðist ekki muna eftir því að hafa hitt drenginn þrátt fyrir mörg afrit af samtölum þeirra á milli í sönnunargögnum málsins.

Lögmaður Ludvigsen segir niðurstöðuna koma skjólstæðingi sínum verulega á óvart og hyggst áfrýja niðurstöðu dómsins.  


Tengdar fréttir

Telur að Ludvigsen hafi aðeins aðstoðað fórnarlömb sín til þess að sýna vald sitt

Einn af hælisleitendunum sem Svein Ludvigsen, fyrrverandi sjávarútvegisráðherra Noregs, er sakaður um að hafa brotið á kynferðislega telur að hjálpsemi hans í þeirra garð hafi aðeins verið hans leið til þess að sýna hversu mikið vald hann hefði. Hælisleitandinn segist á einum tímapunkti hafa haft í hyggju að myrða Ludvigsen vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×