Bíó og sjónvarp

Hildur bætist í fámennan hóp Íslendinga í bandarísku kvikmyndaakademíunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hildur Guðnadóttir tónskáld.
Hildur Guðnadóttir tónskáld. ANTJE TAIGA JANDRIG

Íslenska tónskáldinu og sellóleikaranum Hildi Guðnadóttur hefur verið boðið að taka sæti í bandarísku kvikmyndaakademíunni. Hildur greindi nýlega frá þessu á Twitter en hún hefur hlotið mikið lof undanfarnar vikur eftir sýningu HBO þáttanna Tsjernóbíl.

Hildur bætist í hóp Íslendinga sem hafa hlotið boð í akademíuna undanfarin ár. Má þar nefna Jóhann heitinn Jóhannsson tónskáld og Fríðu S. Aradóttur förðungarfræðing sem var boðið sæti árið 2015. Hebu Þórisdóttur förðunarfræðingi var boðið árið 2016 og Atla Örvarssyni tónskáldi árið 2017. Elísabet Rónaldsdóttur kvikmyndaklippara var boðið sæti í fyrra.

Hildur þakkaði akademíunni kærlega fyrir boðið á Twitter og sagði um mikinn heiður að ræða. Akademían kýs á hverju ári um hverjir hljóti Óskarsverðlaun.

Auk þess að semja tónlistina í Tsjernóbíl er hún með tónlistina í kvikmyndinni Joker á borðinu hjá sér. Þá samdi hún tónlistina í framhaldsmyndinni Sicario: Day of the Soldado en Jóhann Jóhannsson samdi tónlistina í fyrri myndinni.

Hildur ræddi í útvarpsþættinum Score á dögunum hvernig hún hefði staðið að því að semja tónlistina fyrir Tsjernóbíl. Öll tónlistin var samsett úr hljóðum úr kjarnorkuveri í Litháen. Hildur lýsti ferlinu í útvarpsþættinum Score fyrr í vikunni.

Upptakan á þáttunum sjálfum fór fram í sama verinu, en Hildur fór ásamt Sam Slater, sem framleiddi tónlistina, og Chris Watson, sem tekur upp hljóðið fyrir alla þætti og myndir David Attenborough, í kjarnorkuverið þar sem þau tóku upp margar klukkustundir af hljóðefni sem síðar var nýtt í gerð tónlistarinnar.

„Mig langaði að upplifa hvernig það er að vera inni í kjarnorkuveri,“ sagði Hildur. Þau Chris og Sam fóru inn í kjarnorkuverið íklædd öryggisbúningum og hlustuðu á kjarnorkuverið.

„Einleikarinn í hljóðrásinni var hurð að dæluherbergi, við vorum ekki að loka henni eða hreyfa hana neitt en við komum upp að hurðinni með hljóðnema og heyrðum bara fullt af hátíðnihljóðum og hún var að gera fullt af svakalegum hljóðum sem var nánast ekki hægt að heyra. Og ég hlustaði á þessa hurð í marga marga klukkutíma og svo voru kannski þrír mismunandi tónar á 35. mínútu sem ég nýtti í að gera melódíu.“


Tengdar fréttir

Enginn þáttur fengið eins góðar viðtökur

Þættirnir Tsjernóbíl hafa heldur betur slegið í gegn um allan heim að undanförnu en þeir eru byggðir eru á atburðum sem áttu sér stað árið 1986 í Tsjernóbíl í Úkraínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×