„Við verðum að segja þessu fólki rétt frá, það er enginn að skera niður bætur“ sagði Willum Þór Þórsson formaður fjárlaganefndar í Kastljósi gærkvöldsins. Það hefur aldrei verið neinn vafi að það á ekki að skerða þær litlu „bætur“ sem öryrkjar og fatlað fólk þurfa að „þiggja“, svo ég noti orðfæri formanns fjárlaganefndar sjálfs, orðfæri sem reyndar ber vott um „sérstakt“ viðhorf gagnvart fötluðu fólki og öryrkjum. Í mínum huga er niðurlægjandi að Willum telji að við fatlað fólk og öryrkjar höfum ekki skilið að aldrei var talað um að skerða bætur.
Það var augljóst öllum, líka okkur öryrkjunum að tillagan var um að skera niður um 8 ma. það fjármagn sem áætlað var að setja inn í málaflokk örorku og fatlaðs fólks. Fyrir mér þýðir það einfaldlega að enn og aftur er ekki að vænta hækkana á örorkulífeyri umfram furðulegar reikningskúnstir fjármálaráðuneytisins á 69. gr. laga almannatrygginga um hver áramót. En hún hefur lotið hundakúnstaútreikningi fjármálaráðuneytisins hverju sinni og sjaldnast eins reiknuð frá ári til árs. Þetta hefur leitt til þess t.d. að örorkulífeyrir er of lítil upphæð til að fólk geti framfleytt sér af.
Í desember 2011 lýsti ÖBÍ yfir miklum áhyggjum vegna fjárlaga 2012, þá var minnt á að öryrkjar urðu fyrstir fyrir skerðingum þegar bankahrunið varð, með loforði um að þeir fengju fyrstir leiðréttingar sinna mála þegar fjárhagsstaða ríkissjóðs batnaði. Þá var talað um að leiðréttingar kæmu þremur árum frá hruninu, þær leiðréttingar hafa ekki enn skilað sér!
Þetta sama ár fengu þeir öryrkjar sem voru á strípuðum örorkulífeyri kr. 196.140 f.sk.
Í dag átta árum seinna hefur þessi sami örorkulífeyrir hækkað um kr. 51.043. Hækkun á örorkulífeyri hefur orðið heilar kr. 6.380 f.sk. á ári (532 kr. á .mán.) undanfarin átta ár og er í dag kr. 247.183 f.sk.
Í ljósi þess að örorkulífeyrir hefur hækkað um 6.380 kr. á ári undanfarin átta ár og það að nú er runnin upp tími sannsöglinnar, hlýt ég að spyrja formann fjárlaganefndar og fjármála- og efnahagsráðherra að því hvort yfirleitt standi til að leiðrétta kjör öryrkja og fatlaðs fólks?
Kjaragliðnun síðasta áratugs hljóðar upp á 29%, m.ö.o. rýrnun örorkulífeyris á þessu tímabili er um 29%, leiðrétting á kjörum hefur því augljóslega engin orðið.
Ég ætlaði ríkisstjórninni ekki það illverk að skera niður „bætur“. Ég ætlaði ríkisstjórninni að standa við loforð sem gefið var fyrir 11 árum síðan. Ég ætlaði henni að hækka örorkulífeyri þannig að mögulegt væri að framfleyta sér af honum og ég ætlaði henni að afnema alveg „krónu á móti krónu“ skerðingu. Fyrri fjármálaáætlun 2020-2024 í mars varð ÖBÍ veruleg vonbrigði, eðlilega, þar sem ljóst var að fjármunir sem ætlaðir voru í málaflokkinn áttu að mestu að nota til breytinga á almannatryggingakerfinu en myndu ekki duga til að taka út krónu á móti krónu skerðinguna. Við sáum hvergi þess merki að örorkulífeyrir yrði hækkaður. Nú þegar meira en helmingi minni fjármunir eiga að fara í málaflokkinn er ljóst að öryrkjar og fatlað fólk verður áfram í svelti.
Þessi framkoma stjórnvalda í garð örorkulífeyrisþega er óásættanleg og hlýt ég að fara fram á, að stjórnvöld endurskoði fjármálaáætlunina með það fyrir augum að ekki bara núlla hana heldur bæta við verulegum fjármunum í málaflokk örorku og fatlaðs fólks, þannig að stjórnvöld geti staðið við gömul og ný loforð. Loforð um að afnema skerðingar og hækka örorkulífeyri til gagns fyrir þá sem á honum lifa. Örorkulífeyrir er framfærsla fólks, hann er til vegna þess að við sem samfélag viljum tryggja það að fólk hafi framfærslu til mannsæmandi lífs ef það getur ekki unnið sökum veikinda eða fötlunar. Örorka er ekki valkvæð né eftirsóknarverð og það að veikjast, fatlast eða fæðast fatlaður er ekki skömm þess sem hana ber. Örorka á ekki að vera ávísun á skammarlega lága framfærslu. Ég skora á Ásmund Einar Daðason og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að næraß ekki fátækt.
Höfundur er formaður Öryrkjabandalags Íslands.

Pólitík er mannanna verk
Skoðun

Afleit vinnubrögð hjá Vatnajökulsþjóðgarði
Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar

Saman mótum við skýra framtíðarsýn
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir skrifar

Fyrir hverja er í boði að mennta sig?
Alexandra Ýr van Erven skrifar

Stelpur, hafið þið heyrt um LSD?
Þorgerður M Þorbjarnardóttir skrifar

Hafðu samband ef þú ert í vanda! (en helst ekki, því að við erum undirmönnuð)
Jóhanna Freyja Ásgeirsdóttir skrifar

Stuðlum að vellíðan barna
Unnur Arna Jónsdóttir,Hrafnhildur Sigurðardóttir,Ingrid Kuhlman skrifar

„Ein-stærð-fyrir-öll”
Sigríður Helga Kárdal Ásgeirsdóttir skrifar

20. mars er alþjóðlegi hamingjudagurinn
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar

Af minkum og mönnum
Rósa Líf Darradóttir skrifar

Betri er auðmjúkur syndari en drambsamur dýrlingur
Stefanía Arnardóttir skrifar

„Skrípaleikur“ Sigmars
Hildur Sverrisdóttir skrifar

Nú hefur fólk sýnt sitt rétta andlit
Benedikta Svafarsdóttir,Magnús Guðmundsson,Sigfinnur Mikaelsson skrifar

Flatkökur og vínberjasulta í altarisgöngu
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Hvaða afleiðingar hefur fjársveltið?
Arna Dís Heiðarsdóttir skrifar

Hvernig lítur Ísland út 2040?
Nótt Thorberg skrifar